Dýraverndarinn - 01.12.1977, Síða 29

Dýraverndarinn - 01.12.1977, Síða 29
Dýrbíturinn Faðir minn, skáldið og dalabónd- inn Sveinn Hannesson frá Elivog- um, var fceddur í Móbergsseli í Vatnsskarði, Austur-Húnavatns- sýslu, hinn 3. apríl 1889, en and- aðist í Reykjavík 2. júlí 1945, 56 ára aðaldri. Hann bjó fyrst í Eli- vogum í Skagafirði með móðtir sinni, en kvæntist árði 1922 og fluttist vestur í Húnavatnssýslu ár- ið eftir og settist að á Laxárdal. Bjó þar aðallega á tveimur jörðum: Sneis og Refsstöðum. A síðar- nefndu jörðinni latik búskap föður míns, er hann var þrotinn að beilsu og kröftum. Á Refsstöðum, sem er fjallajörð, var tófan ágeng við sauðfé dalabóndans, drap lömb í tugatali. Var það mikill skellur oft og tíðmn. En faðir minn vissi, að tófan þurfti mat eins og mennirn- ir handa sjálfri sór og afkvcemun- um. Eftirfarandi vísur þarfnast ekki frekari skýringa. Auðunn Bragi Sveinsson Þó að tófan taki skatt telzt það nærri vonum. Hún má prófa baslið bratt að bjarga afkvæmonum. Trosnar skinn á tærðum búk tófunnar í greni. Liggur inni sultarsjúk soginn tómur speni. DÝRAVERNDARINN Sárkveljandi sviðamein soltnar garnir finna. Húsráðandinn heyrir kvein hungurbarna sinna. Mjög hið ytra útlitsgrár, æfður í margs kyns brösum. Vargsins titra veiðihár, voði er á næstu grösum. „Hví skal eigi reyna ráð, reka burtu dofa. Hinumegin bíður bráð, blóðheit lömb, er sofa. Þó að lánið lifi skammt lengst er bóndinn saddur. Hann á ána eftir samt, ekki á hjarni staddur. Víst mun slíkur sjá um sig saðning þó hann tapi. Hann er ríkur móts við mig, mildari ei í skapi. Þó hann fræði þylji um Krist og þykist hata klæki, eigin bræður æti af lyst ef í nauðir ræki. Undir steini í illviðrum einn ég soltinn húki, situr í leyni á svikráðum svartur djöfuls púki. Því skal aldrei semja sátt sultarær í taugum. Honum gjalda hlýt ég grátt hel unz lokar augum." 29

x

Dýraverndarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.