Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.12.1977, Blaðsíða 34

Dýraverndarinn - 01.12.1977, Blaðsíða 34
r Sigurður Gíslason Útigangshross Frostvindar næða um freðna jörð og fannirnar grundir hylja. Skafkóf rennur um blásin börð og beygir hinn stolta vilja. Yfir kafald — en undir svell og ísgaddur, jarðbann víða. Mosinn er dáinn. Allt kulnar og kell í kuldasal norðanhríða. Sinan er grafin og svelluð tó og svört eru nöguð börðin. Snæfeldur hylur mýri og mó og magnþrota hvílir jörðin. Hvert einasta strá þar sem eyðu sá er étið og líka moldin. — Nú sést ekki eyða né stingandi strá og stirnuð sem lík er foldin. Utigangshross með úfin hár um ísgaddað hjarnið reika — frostgolan næðir sviðasár og svekkir hinn máttarveika. Þögul er sorgin í þeirra brá og þrútna með hverjum degi. — Hvergi er skjól né fóður að fá og frostnepjan hlífir eigi. Klökuð af gaddi þau krafsa fönn, með kulda í öllum taugum. Krafsturinn fyllir hríðarfönn svo haglið bylur á augum. ísnálar stinga yldauða húð og iðan er sífellt á vakki. Töglin af frostvinda gnauði gnúð og gödduð í klakastakki. Fárviðrið lemur fannbarinn hól og frystir blóðið í æðum. Himininn kafaður, sést ekki sól og særinn í hafísaklæðum. Hækkandi skaflar, og hríðin er söm að hörku — en aldrei nein þýða. Útigangsjálkarnir híma í höm með helró og úrslita bíða. J Fróðleiksmolar - pillan „OVARID" er notuð til - eða ef kisan eða hundurinn er að gera tíkur ófrjóar. lystarlaus er gott að setja GLU- frá - ef einhver hefur í umsjá sinni KOSE (sem ætti að fást í apó- uglu, eða hrafn, eða eitthvað af tekum) í vatnsskálina. Magn: Englandi þessum stærri fuglum á að gefa 1—2 teskeiðar í skálina. þeim hrátt kjöt blandað örlítið - GLUKOSE er líka gott ef um með bómull eða mjúku hæsna- uppköst er að ræða. Þá skal not- fiðri, til þess að gefa fuglinum að ÍSKALT vatn + GLU- eitthvað sem er gott fyrir melt- inguna. KOSE. 34 DÝRAYERNDARINN

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.