Nýtt land - 01.01.1936, Síða 6

Nýtt land - 01.01.1936, Síða 6
4 N f T T L A N D Og stríðandi lýður: Sjá, land þitt hér bíður! Þitt land — það er norðursins garala storð, þegar sjálfur þú hefir þinn frelsisveg fundið' og f ■jötrana slitið og valdinu lirundið, sem æ hefir manndóm þinn bundið við borð. — Þegar auðvaldsins skurðgoð úr hásæti hrapar, liinn hreinsaði, magnaði vil ji þinn skapar sitt land, þar sem réttur þinn ríkir og rætast í verki hin fögru orð. En vinnandi lýður, þú verkamaður, bóndi: Hvað veldur, að töfin þér fellur i skaut? Er það útlifað, blóðvana braskaravaldið, sem baráttu þinni í skef jum fær haldið? Er f jandliðsins vigi hin þyngsta þraut? Nei, — þetta, sem hindrar að hl jótir þú framann, er heimskan þín mikla: — að standa ekki saman. Þvi hvað geta íaeinir fantar, ef f jöldinn þeim mætir á einhugans braut? Þú stríðandi lýður! El' samstillt er sókn þín og sannleikans egg jar þú hvessir i brand, og látlaust þau öfl þín á veginum vaka, sem vikja ekki eitt einasta fótmál til baka, þá tekst þér að græða hinn svartasta sand. — Ef hræsnina og svikin þú hrekur á flótta og hugprúður, vondjarfur, laus við ótta, þú okinu af baki þér byltir, þá blasir það við þér — hið nýja land.

x

Nýtt land

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt land
https://timarit.is/publication/606

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.