Nýtt land - 01.01.1936, Side 7

Nýtt land - 01.01.1936, Side 7
N Ý T T L A N D 5 Guðmundur Gíslason Hagalfn: Móðir barnanna. i. Hún bjó i litlu húsi i hænsnagirð- ingu í miðjum bænum. Húsið var upj)- haflega smíðað þarna til að flytjast inn í dal — og átti að notast fyrir sumarhústað. En svo varð það of hátt. Bílstjórinn, sem var beðinn að flytja það, sagði, að það mundi rekast i simavirinn, sem lá yfir götuna inn i dalinn. Og þessu var trúað, eftir að gerðar höfðu verið hæðarmælingar með mikilli nákvæmni. Svo stóð þá húsið þarna í algerðu óleyfi. Eigandi hússins var Oscarson, kaup- maður og konsúll, íslenskur í aðra ættina, en norskur í hina — og með sænsku nafni. Hann var sænskur kon- súll, og þegar guð gaf tilefni til, flagg- aði Oscarson með bláu flaggi með gul- um krossi og klofnu stéli, eins og á kríunni, sem er tiginn fugl með rauða skó og svartan hatt á hvirflinum — og alltaf á ferðinni, eins og sá, sem margs hefir að gæta, en ekki er við neitt sérstakt erfiði bundinn. Hvað átti svo Oscarsson konsúll að gera við þetta hús, sem stóð þarna þvert ofan i nýjan og dýran skipu- lagsuppdrátt, eins og þvi hefði verið fleygt inn fvrir girðinguna, rétt aðeins til geymslu yfir nóttina? Rifa það? Tja, það var víst ekki annað að gera — og var það þó jevlig. Oscarson bölvaði alltaf á sænsku eða norsku, en á þeim málum gerði hann ekki glöggan grein- armun, síðan hann varð konsúll — því norskuna kunni hann nokkurn- veginn, en vildi heldur tala sænskuna og átti bæði sænska vísna- og sálma- bók og lét þær liggja á borðinu í skrif- stofunni, þar sem hann talaði við skip- stjóra á sænskum síldarskipum . . . Nú, hvað sem öðru líður, þá liafði Oscarson mörgu að sinna — og það drógst að rífa „liýttuna“ ■— eins og Oscarson og frú kölluðu kofann. Svo var það einn morgun, að frú Oscarson, sem var kona á blómlegasta skeiði, sagði við mann sinn, rjóð og nývöknuð: — Heyrðu, góði minn! Við skulum láta hana Hóla-Jónu flvtja í hýttuna hérna úti í girðingunni. Það er svo þægilegt, að geta alltaf gripið til henn- ar, því hún þvær nú hjá mér bæði gólf og þvotta — og hún er svo þæg, greyið, og góð að snúa henni. Carl Adolf Oscarson Sviakonsúll leit á frúna -—- og það var eins og stir- urnar í augunum á honum minnkuðu, enda var frú María Oscarson með af- brigðum geðsleg og frúarleg svona vf- irleitt, en alveg sérstaklega eins og hún hvildi nú þarna á vormorgni í hvitri sól inn um glugga — með gróðr- arilm i kringum allan likamann. — Það er að maður fái að hafa hana þarna, sagði lconsúllinn, og það var eitthvað i málrómnnm og augna- ráðinu, sem minnti á ldýleg síðsuin- arkvöld, þegar allt í moldinni grunar haust og teygar óminni af bikar rauðr- ar, sigandi sólar. Hann var 15 árum eldri en frúin, konsúllinn. -— Fáum! Við látum bara stúlkuna flytja inn. Ég ræð þá þvi.

x

Nýtt land

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt land
https://timarit.is/publication/606

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.