Nýtt land - 01.01.1936, Blaðsíða 26
24
N t T T L A N D
skapar í þessu augnamiði, og var hún
borin undir atkvæði og samþykkt með
öllum atkvæðum".
Eftir þetta var kosin 5 manna nefnd
til þess að semja frumvarp til laga
fyrir fvrirhugað félag. Formaður þeirr-
ar nefndar var Árni Jónsson, kosinn
með 35 atkvæðum.
Næst er þess getið, að þessi nefnd
kvaddi til fundar í Báruhúð 3. jan.
1906. Ekki er þess getið, live margir
sóttu þann fund.
Laganefndin kvaðst ekki hafa lok-
ið störfum, en hún lagði fram stofn-
skrá fvrir væntanlegt félag, sem henni
hafði komið saman um að nefna:
Verkamannafélaffið Dagsbrún.
Var ákveðið að stofnskráin skyldi
liggja frammi til undirskriftar til
næsla fundar, og skyldu allir, sem und-
ir liana rituðu, hoðaðir á næsta fund.
Þessi stofnskrá er enn til, eins og
frá henni var gengið þarna, með eig-
Pétur G. Guðmundsson.
inhandarnöfnum allra, sem undir
hana rituðu. Hún er þannig:
„Vér, sem ritum nöfn okkar hér
undir, ákveðum liér með að stofna
félag með oss, er vér nefnum
„Verkamannafélagið Dagsbrún“.
Mark og mið þessa félagá vors á
að vera:
1. Að styrkja og efla hag og atvinnu
félagsmanna.
2. Að koma á betra skipulagi að þvi
er alla daglaunavinnu snertir.
3. Að takmarka vinnu á öllum
sunnu- og helgidögum.
4. Að auka menningu og bróðurleg-
an samhug innan félagsins.
5. Að styrkja þá félagsmenn eftir
megni, er verða yrir slysnm eða
öðrum óhöppum".
Þessi stofnskrá varð stefnuskrá fé-
lagsins óbreytt, sem 2. gr. i félagslög-
um Dagsbrúnar, allt til ársloka 1919,
eða i 14 ár.
Hinn 26. janúar voru kallaðir til
fundar allir þeir, sem un'dir stofn-
skrána höfðu ritað. En þeir voru þá
orðnir 384. Á fundi, sem haldinn var
rúmum hálfum mánuði siðar, gengu
í félagið 136 menn. Voru þá félags-
menn orðnir 520. Þetta var gífurleg
aðsókn, það svarar til, eftir mann-
fjölda i bænum, að nú væri hér stofn-
að félag með rúml. 2000 manns.
Á fundinum 26. jan. 1906 voru sam-
þykkt lög félagsins og kosin stjórn.
Þar með var endahnúturinn riðinn á
stofnun Dagsbrúnar.
Fyrsta stjórnin var skipuð þessum
mönrium:
Sigurður Sigurðsson, búfræðingur,
(form.).
Ólafur Jónsson, búfræðingur,
(ritari).