Nýtt land - 01.01.1937, Blaðsíða 7

Nýtt land - 01.01.1937, Blaðsíða 7
N Ý T T L A N D Alþýðusambandsþingið 1936. Stefna Alþýðuflokksins er litlum breytingum háð. 1 sumum flokkum má sífellt vænta þess, að stundarvilji sterks foringja geti snúið flokksvilj- anum í óvænta átt, og það jafnvel Annars er árið, sem var að líða, sér- kénnilegast fyrir þann gífurlega rudda- blæ, sem þá færisl yfir opinber sam- sldpli þjóðanna. Frekjan í samnings- rofum færist mjög i vöxt, og þó öllu fremur frekja nokkurra stórvelda um það að blanda sér í og ráða málefn- inn máttarminni þjóða. Og samtímis fer fram svo ótrúleg fölsun hugtaka og staðreynda, að mann nálega furð- ar á. Þess er t. d. krafizt af vissum mönnum, að styrjöldin á Spáni sé kölluð borgarastyrjöld. Þó er það sannað, að þar berjast 'sendihersveit- ir tveggja stórveldastjórna og að minnsta kosti í stórum stíl þegnar þriggja annara landa! Og það er enn- fremur sannað mál, að alls eru fleiri útlendir menn undir vopnum á hlið uppreisnarmanna en innlendir. En það má til að heita borgarastyrjöld. (>ott og vel. Það er styrjöld borgara eins ríkis við borgara annars. Vikuni saman hafa tvö stórveldi í álfunni átt i raunverulegum sjóhernaði og víking. En það má ekki heita hernaður. Það eru varnaðar- og liindrunarráðstafan- ir. Með sama áframhaldi verður öll Evrópa komin í hál, áður en levfilegt er að nefna stríð, og búið að slátra ií—fi smáríkjum á sama hátt, áður en levfilegt er að nefna ofbeldi og sajnn- þó að sá „foringjavilji“ væri fenginn að láni frá Berlín eða Moskva. í öðr- um tilfellum eru það lýðæsingar út af dægurmálum, sem geta hringsnúið heilum þjöðmálaflokkum. Hvorugt getur komið fyrir Alþýðuflokkinn. Trygging fyrir því er ekki aðeins hin fasta rás, sem Alþýðuflokkar allra Norðurlanda og Englands hafa fylgt síðari ár, heldur einkum innri bygg- ing flokksins, — félögin, sem mynda hann. I félögunum rikir lýðræði. Lýðræði ])eirra er byggt á tvennu, óskyldu og þó samrýmanlegu: stéttvisi og þegn- legri víðsýni. Félögin eru geysifjöl- menn, dreifð, bundin við ýmsar at- ingsrof og pólitísk níðingsverk. Og það ber vel að því að gæta, að það eru ofbeldisstefnurnar í álfunni, sem heixnta slíka kurteisi, og það er i þeirra þágu, sem fölsun hugtaka og staðreynda fer fram. Ég hef i fórum minum dálitið eftirtektarverð gögn um þær aðferðir, sem ákveðin stór- veldi liafa í liyggju að beita, til að kenna smælingjum, sem ekki þykir eyðandi púðri og byssum á, eins og íslendingum, að beygja sig. Það gefst kannske i ekki allt of fjarlægri fram- tíð tækifæri til þess að skýra frekar frá þeim. Hér verður að nægja að segja það, að ]iað, sem vopnunum er ætlað að vinna á nálægum vettvangi, þar sem til mikils er að slægjast, er viðskiptasamningum ætlað að vinna á fjarlægum vettvangi í viðureign við smælingjana.

x

Nýtt land

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt land
https://timarit.is/publication/606

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.