Nýtt land - 01.01.1937, Blaðsíða 13

Nýtt land - 01.01.1937, Blaðsíða 13
N Ý T T L A N D 11 urinn er, að Alþfl. hefði jafnlítið gagn af hvoru Iveggja, samvinnu eða „striði“ við Kommúnistaflokkinn. Þó að kommúnistar liafi svifizt fárra l)ragða í undirróðri sínum gegn nú- verandi stjórn og ætlað að skapa sér með því fylgi, hvað sem kostaði, hefur flokkurinn sízt vaxið. Og áhuginn i flokknum fer þverrandi af skiljanleg- um orsökum. Þess vegna er þar sú óskin heitust, að komast i skjól Al- þýðuflokksins. Kommúnistar finna svo til smæðar sinnar, að þeir reyna að imynda sér, að „róttækari hluti Al- þýðuflokksins“ sé í þann veginn að ganga í Kommúnistaflokkinn, og við þann barnalega draum er hundinn all- ur kjarkur þeirra. Aðferðin til að láta drauminn rætast var „samfylking“, sniðin eftir flokksviðhorfum landa, þar sem borgarastyrjöld ógnar. Skil- yrðið fyrir slikri styrjaldarsamfylking skortir hér á landi um fyrirsjáanlega framtíð, sem hclur fer. Þess vegna samþykkti Alþýðusambandsþingið að hafna hoðum um samfylking, „ein- dregið og í eitt ski])ti fvrir öll“. Til- lag'a kom fram um það á þinginu, að fclla hurtu þessa hlífðarlausu neitun, )neð hliðsjón af því, að aðrir hlutar starfsskrárinnar fela i sér óbeina neit- un á samvinnu við kommúnista. En tillagan var felld með yfirgnæfandi meiri hluta (99:37 fulltr.), og þorrinn af stuðningsmönnum hennar greiddi síðan alkvæði með starfsskránni i heild. Frekari vitni þurfa kommúnist- ar ekki um j)að, að „róttækari hluti Alþýðuflokksins” muni aldrei skipta um flokk; draumar þeirra rjúkanit i veður og vind. Vonir kommúnista um klofning i verkamannafélaginu Dags- hrún revnast ekki mikhi haldhetri. Sundrungin og niðurrifið verður hlut- verk kommúnista, svo lengi sem Mosk- va stjórnar þeim. En ef þeir eru að þreylasl ó eigin tómleik og ósjálfstæði, liætta að lilýða erlendum skipunum og vilja sýna umbótaviðleitni í innan- landsmálum, geta þeir gengið í Al- þýðuflokkinn. Starfsskráin fjallar um viðreisn, en eklci niðurrif atvinnuveganna, ekki um stéttabaráttu í tíma og ótíma, lieldur um samvinnu allra vinnandi stétta i kaupstöðum og sveitum. Framkvæmd jafnaðarmennskunnar á að byrja með því að útrýma atvinnuleysi og neyð, með því að heita öllum hæfum ráð- um til að gera atvinnuvegina arðhæra, — einstaklingsframtaki, •samvinnu og ríkisaðgerðum eflir kringumstæðum á hverjum stað, -—- en gæta jafnvægis i kaupgetu allra vinnustétta, jafnvægis milli hæja og sveita. Innan Alþýðu- flokksins rúmast breytilegar skoðanir, enda er það hverjum lýðræðisflokki lífsriauðsyn. En fyrir þeim skoðunum er harizt á hæði þegnlegan og stétt- vísan liátt í einu, nær undaritekning- arlaust. Þannig varð það á Alþýðu- samhandsþinginu. Starfsskráin ber vitni um e. k. málamiðlun. Engin bylt- ing er hoðuð, heldur þróun, engir skipulagsdraumórar, heldur nærtæk, rökrétt leið út úr kyrrstöðu kreppunn- ar. En starfsskráin er víðtæk og rót- tæk samfara gætninni. Ólafur Thors sér það rétt, að í atvinnumálum fer hún út fyrir þau „véhönd, sém Alþfl. hefur til þessa markað starfi sínu“. Þess vegna gripur óttinn andstæðinga flokksins. Þeir sýnast óttast tilraunir lil að vinna úr íslenzkri framleiðslu, til atvinnuauka; þeir óttast, að trjrggt verði með lögum, að framleiðslutækin,

x

Nýtt land

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt land
https://timarit.is/publication/606

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.