Nýtt land - 01.01.1937, Page 18

Nýtt land - 01.01.1937, Page 18
16 N Ý T T L A N D ina að breyta reglugerð um réttindi til að aka bifreið á þann liátt, að kom- ið verði á 3 mánaða námskeiði, þar sem viðkomandi lærlingur öðlist nægi- lega þekkingu i meðferð og akslri bif- reiða. Próf þetta gildi sem fullnaðar- próf lil akslurs. Bókmenntafélag jafnaðarmanna. 13. þing Alþýðusambands Islands skorar á stjórn Bókmenntafélags jafnaðar- manna, sem síðast var kosin, að taka þegar upp starfsemi félagsins af nýju, þar sem nú eru að verða fyrir liendi skilyrði fyrir því, að Alþýðuprenl- smiðjan geti annað prentun fyrir það, auk blaðsins. Um verklýðsmál, — þar á meðal kaupgjaldsmál, — þyrfti langa skýrslu, en fált verður nefnt í þessari grein. Margra réttarbóta var krafizt, sem þykja sumar sjálfsagt mál, þar sem verklýðsfélög eru sterk, en fjarstæða, þar sem þau eru máttlítil. Helztu á- lyktanir voru um samræming kaup- gjalds, vikulegar kaupgreiðslur, sum- arfrí með fullu kaupi, kaupgjalds- jafnrétli kvenna og karla við jöfn störf og afköst, álla stunda vinnudag við sumar tegundir vinnu, rétt sendi- sveina, greiðslu „akkorða“ og aflahlut, endurskoðun hjúalöggjafar og loks um undirbúning vinnulöggjafar. Síðasta atriðið er kannske mesta vandamálið, sem þingið tók afslöðu til. Þess var krafizt, að engin ákvæði yrðu setl að fornspurðum verklýðssamtökunum, og verður ekki efast um, að núverandi ríkisstjórn muni virða þá kröfu. At- vinnumálaráðherra skipaði snemma í desember 4 manna nefnd til þess að gera tillögur lil ríkisstjórnarinnar um löggjöf um réttindi verklýðssamlak- anna, afstöðu þeirra til atvinnurek- enda og yiieðferð deilumála milli þess- ara aðila. AlþýðusambaiuÍsþingið vann að undirbúningi lagabreytinga og lcaus 5 manna milliþinganefnd til að endur- skoða lög sambandsins með aðstoð sambandsstjórnanna í fjórðungum landsins. Frumvarp til lagabreyting- anna skal leggja fyrir Alþýðusam- bandsþing 1938. Alþýðusambandsþingið fól forseta sambandsins að boða alla sambands- stjórparmenn og varamenn þeirra á fund í október eða nóvember 1937. Á fundi þessum skal sambandsstjórn einkum talca til athugunar undirbún- ing undir bæjarstjórnar- og hrepps- nefndarkosningar í janúar 1938 og al- þingiskosningar, ef þær liafa ekki fram farið áður, og laka ákvarðanir um að- al-stefnumál Alþýðuflokksins við þess- ar kosningar, að svo miklu leyti sem unnt er. Á fundi þessum skulu vara- menn hafa sama rétl og aðalmenn í sambandsstjórn um ákvarðanir þær, er snerta skipulag og stefnumál við kosningarnar. Þingtiðindi Alþýðusambandsþings- ins munu innan skamms gefa fullar upplýsingar; þess vegna þarf hér ekki lillöguskrá né nöfn þeirra fulltrúa, sem mest ber að þakka þingstörfin. Það er óhæll að lala um Alþýðusambands- þingið sem heild og um allsherjarvilja þess; í flestum atriðum stóð það sem einn maður. Orsök þess var þó ekki hóphrif eða stundarblekking, eins og oft vill verða á fjölmennum fundum, heldur rótgrónar sameiginlegar skoð- anir og óhvikul tilfinning um einingu og mátt verklýðssamtakanna. Starfs- skráin og tillögur um liöfuðatvinnu-

x

Nýtt land

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt land
https://timarit.is/publication/606

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.