Nýtt land - 01.01.1937, Síða 21

Nýtt land - 01.01.1937, Síða 21
N Ý T T L A N D 19 lega ánægð með þau skil, sem Guðmundur gerir því. Einkum á þetta þó við eina aðal- persónu sögunnar, Sverri, sem verður eins og hann sé klipptur út úr sögubók fyrir sunnudagsskólabörn. Þetta stendur í nánu sambandi við þann höfuðgalla sögunnar, að höfundur tekur efnið einmitt of léttum tök- um, þegar kemur að hinum örlagaþrungnu augnablikum, dregur fáa og granna drætti, sem geta dugað, þegar verið er að sýna drög atburðanna, en eru of óskýrir, þegar lýsa á atburðum og hugarástandi, sem skapa staumiivörf mannlegs lífs. En sagan er samt skemmtileg — og, eins og áður er sagt, sýnir hún, að þarna er skáld á ferðinni. Stíllinn er stundum alli annað en frumlegur, en hann er lika víða þrunginn iífi og Iitum, sem bera voti um sérstakan persónuleik höfundar og hæfileika til að skynja hin óendanlega mörgu skipti ljóss og skugga tilverunnar, sem einmitt gera hana svo dásamlega fjölbreytta og svo hörmulega viðsjála. Og af persónulýsingum höfundar dreg ég þá ályktun, að hann hafi næmt auga fyrir því, sem einkennir menn- ina. Hann þurfi aðeins að gefa sér betri tíma tii að láta þessi einkenni njóta sín, verði að athuga betur, hvaða ljós liann þurfi að iáta á þær falla, til þess að jiessi ein- kenni geti sýnl okkur þeirra innri mann þannig á úrslitastundunum, að við finnum okkur sannfærð og þykjumst þekkja liann til hiítar. Guðmundur Gíslason Hagalín. Jón Magnússon: Flúðir. Kvæði. Fyrsta ljóðabók Jóns Magnússonar, Blá- rkóga'r, sýndi það glögglega, að höfundur- inn var prýðilega hagmæltur, smekklegur í orðavali og vel hugsandi. En lifsviðhorfin voru að engu leyti nýmæli, og höfundinum tóksl ekki að sýna á þeim neinar nýjar hlið- ar. Ekki reyndi hann heldur að draga að jieim athygli með nýju formi eða nýrri fram- setningu. Onnur bók Jóns, Hjarðir, sýndi mikla framför. Höfundurinn fór reyndar enn hinar gömlu og troðnu götur, en honum hafði nú vaxið svo skarpskyggni og máttur tungutaks, að hann fékk lesandann til að iíta á jiað, sem hann benti á — og þegar tiest lét, fékk hann vakið hjá honum sanna hrifni, ýinist á mikilúðlegum mönnum, töfr- andi náttúrufegurð eða samruna vorsins í sálum mannanna og náttúrunni umhverfis. Svo er þá komin frá hans hendi þriðja ljóðabókin. Hún heitir Flúðir. Ef til vill má finna fleira að henni en hinum, en hér er lika höfundurinn oft á nýjum leiðum, bæði efnis og forms, og fleira, sem lesandinn stansar við og finnst hann þurfa að taka afstöðu t}l. En hvað sem þessu liður, þá er hér meiri persónuleiki, meira lif og meiri fjölbreytni en áður. Fyrsti kafli bókarinnar heitir Vígvellir. Hann mundi hafa verkað sterkar, ef kvæð- in hefðu haft samfellda stígandi — hefðu skapað heild. Þau verða þarna eins og brot úr stærri bálki. En þetta skerðir ekki á- hrifamátt jieirra kvæða, sem geta notið sín sjálfstæð. Og sum þeirra eru borin fram af heitri skapólgu særðrar réttlætistilfinningar og djúpri samúð með mönnunum, hvort sem þeir eru nær eða fjær. Vil ég l»ar sérstak- lega benda á Hergagnasafnið, Iðja vor og Verkfall. Einkum eru þó tvö hin fyrnefndu þrungin liita og orðkynngi. Og skáldið sér ekkert annað ráð út úr ógöngum ófriðarins en að verkamennirnir, sem búa til vopnin á sjálfa sig og bræður sína og fylla pyngj- ur „varganna, sem lifa á mannablóði", en lifa sjálfir við óhollan og þröngan kost, sjái betur en hiiiir prisuðu og lærðu forráða- menn þjóðanna og neiti að vinna þessi störf. Þvi heitir síðasta kvæðið Verkfall. Veiðiólmir ædduni vér i striðin eftir kalli hjásitjenda blauðra, grófuni oss og skriðum moldarmyrkrin, niaðkaveitu lifenda og dauðra. Flæmdum heim úr fjandskaparins eldi fylgt oss hefir þjáningin og sorgin. Limum vorum, hjarta og ráði ræntir, röltuni vér um gylltu betlitorgin. (Úr Iðja vor). Hættum, bræður, þetta tafl að tefla. Tjónið bíður vor, en klækjagróði þeirra fáu, er vopnaauðnum velta, varganna, sem lifa á mannablóði. (Úr Verkfall). Þá sér höfundur einnig, hvernig trúar- brögðin eru misnotuð í þágu hins djöful-

x

Nýtt land

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt land
https://timarit.is/publication/606

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.