Sumargjöfin - 22.04.1926, Blaðsíða 11

Sumargjöfin - 22.04.1926, Blaðsíða 11
SUMARG3ÓFIN 11 sem jeg þekti vel. Hann var frámunalega skapstór, reiddist illa og gætti sín ekki. Alt í einu varð sú breyting á, að þessi drengur lærðl vel að stjórna sjer, og það var að þakka ráði, sem faðir hans fann upp. Og ráðið var þetta: A hverju kvöldi gerðu þeir reiknlngsskil og rifjuðu upp, hve oft dreng- urinn hafði reiðst um daginn, og smámsam- an fór því fækkandi, uns drengurinn náði valdi yfir sjer. Einkunnarorð, sem þeir notuðu var þetta; »Sá sem stjórnar geði sínu, er meiri en sá, sem yfirvinnur borgir«. Sigurgleðin að hafa reiðst sjaldnar en daginn áður, varð aflgjafi til betri framkomu næsta dag. Ungmennalýðveldið í Freeville. I Freeville í New Vork ríki er mjög ein- kennileg stofnun. Það er heimili fyrir van- rækta unglinga. Það er orðið heimsfrægt fyrir það, hve miklum stakkaskiftum ungling- ar hafa tekið þar. Þó að þeir hafi áður þótt hverjum manni hvimleiðir og alstaðar óhaf- andi, hafa þeir lært þar sjálfsafneitun og sjálfsvirðingu og í flestum tilfellum orðið góð- ir borgarar. William Rubin George heitir maðurinn, sem fann upp fyrirkomulagið á þessari stofnun. Hann er fæddur 1866 í West Dryden í New Vork ríki. Hann var þjóðfje- lagsfræðingur og mannvinur. Hann hefir rit- að bók er nefnist Juniour Repablic (1910) og aðra er nefnast Citizens Made and Re- made (1912). Hann kyntist afbrotabörnum og hugsaði upp nýtt fyrirkomulag á stofnun handa þeim. Arið 1895 kom hann hugmyndinni í fram- kvæmd í Freeville. Staðurinn lítur út eins og dálítið sveitaþorp. Stofnunin á 350 ekrur af fallegu landi. Á því stendur stórt skólahús svefnskálar, stórt matsöluhús, sjúkrahús, kirkja, bókasafn, leikfimishús og fangelsi. Auk þessa er þar brauðgerðarhús, leirbrensiusmiðja, þvottahús, járnsmiðja, trjesmíðahús, pípugerð- arhús og prentsmiðja. Stofnunin er dálítið lýðveldi, með sama fyrirkomulagi og lýðveldi Bandaríkja. Ungling- um frá 16—18 ára er veitt inntaka, og verða þeir borgarar lýðveldisins. Kosningarjett hafa menn frá 18—21 árs bæði piltar og stúlkur. Síðan 1896 hafa allir embættismenn í þessu lýðveldi verið kosnir úr hópi unglinganna sjálfra. Lýðveldið hefir sínar eigin reglur og löggjöf, dómstóla og framkvæmdarvald. 011 mál, sem upp koma, eru prófuð fyrir dóm- stólunum, þar með talin hver misklíð, sem verður í skólastofu, iðnstofu eða í heima húsum. Öll vinna er launuð eftir því hvers virði hún er. Leti og iðjuleysi er refsað með hungri, fyrirmæli postulunans þannig bókstaflega framkvæmd, að sá sem ekki vill vinna, á ekki heldur mat að fá. Öllum afbrotum er refsað eftir lagakerfi, sem smámsaman hefir orðið til í lýðveldinu sjálfu. Þeim er breytt eftir kröfum tímans eins og öðrum lögum. Eitt vikublað er gefið út í ríkinu, og n'efnist Borgarinn. Þar eru mál ríkisins rædd o. fl. Borgararnir mega velja um störf. En eitt- hvað verður hver maður að vinna þann helm- ing dagsins, sem ekki er verið í skólanum. Einkunnarorð ríkisins eru: Ekkert án erfiðis. Víða í Bandaríkjunum hafa komið upp ungmennalýðveldi eftir þessari fyrirmynd. Vfir hverri stofnun er fjelag, sem er alstaðar með í ráðum og leggur á fullnaðarúrskurð. 1908 var stofnað samband allra þessara fjelaga og nefndist: Alþþjóðafjelag ungmenna-lýðvelda. Formaður þess er William R. George. Eftirlitsaðferð. ]uvenile Probation, eða nokkurs konar eftir- litsferð hefir gefist best allra aðferða, til þess að gera afbrotaunglinga að góðum borgurum. Þessi eftirlitsaðferð hófst á Englandi árið 1907 en var amerísk að uppruna, og fundin upp í Massachusetts árið 1878. Aðalhugmyndin með þessu fyrirkomulagi er ekki að refsa unglingnum, heldur að bæta

x

Sumargjöfin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sumargjöfin
https://timarit.is/publication/613

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.