Dvöl - 17.02.1935, Page 3

Dvöl - 17.02.1935, Page 3
17. febr. 1935 D V O L 3 Skreytni Eftir Kolbein frá Strönd Hallgrímur var að íiestu leyti eins og venjulegir menn, en eins og venjulegir menn átti hann líka ýmislegt óvenjulegt í fari sínu, og þess vegna má einnig segja með sanni, að hann var óvenju- legur maður. Þannig er víst flestum farið. Þess- ir óvenjulegu eiginleikar koma sjaldast fram í dagsljósið. Þeir liggja birgðir innst í hugskoti mannsins. Atvikin hafa aldrei opn- að þeim leið. Aðrir eiginleikar hrópa sjálfa sig inn í vitund hvers einasta manns. Þeir auðkenna persónuna. Þannig var einn eiginleiki Hallgríms. Eg hefi aldrei þekkt lýgnari mann. — Þegar eg man fyrst eftir Hall- grími var hann nokkuð við aldur. Hann kom ríðandi neðan traðirnar °g slagaði dálítið á hestinum, því hann var ofurlítið kenndur. Svo Þoysti hann i hlaðið. í vissi eg það fyrst að Hallgrínaur var lyginn. Þannig var lvgi Hallgríms: fíann var alltaf að segja sögu'r, fuílur ög ófullur, — og oftast var hann al- veg ófullur. Hann sagði fínar lygasögur. — Hann sagði þær af vísindalegri natni og nákvæmni. Qftast voru þær um hesta eða aðrar skepnur, en ef þær voru um menn voru þær ætíð frásagnir um afrek. Eitt- hvað þeim til fremdar og frægð- ar.. Hallgrímur laug aldrei neinum til meins. Hann var furðulega sniðugur að koma sögum sínum að. í almenn- um fréttum, eða atburðum dag- legs lífs fann hann ætíð hliðstæð dæmi. Þá var engin vægð. Sög- urnar voru reiðubúnar á hvaða stund og stað sem var. Þær yfir- gengu allan hugsanlega veruleika og þær gengu jafnt yfir alla. Eg heyrði hann meira að segja Líklega hefir hann séð helduriLdemba hroðalegustu lygasögunum því hann fór beint á þvotta-Í wyfir sína eigin fjölskyldu. Kona 8,iúruna og datt af baki, — en tnllir menn meiða sig víst aldrei. Eg var þá barn að aldri, með *lugann fullan barnslegu hug- myndaflugi, en mér blöskruðu sög- Ur Hallgríms. Eg heyrði heimilis- ^ólkið tala um þær þegar hann Var farinn. Það hló að þeim. Þá hans eg börn hlustuðu með undr- únarfullri lotningu. Það var ekki annað hægt að sjá en þau tryðu hverju einasta' orði. Og það furðulega var, að þann- ig var það ávalt, þegar Hallgrímur laug. Það var líkast því að hver maður gerði það að skyldu sinni,

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.