Dvöl - 17.02.1935, Síða 16

Dvöl - 17.02.1935, Síða 16
16 D V Ö I. 17. lebr. 1935 bíts, stal einu sinni 1 kg. af mjöli frá hvítum manni. Hvað gjörði hvíti maðurinn? Hýddi hann Mo- bits? Nei! Drap hann Mobits? Nei? Hvað gjörði hann þá við Mobits? Eg skal segja þér, ó, þú hvíti mað- ur,’ hvernig farið var með Mobits. Hvíti1 maðurinn á hús — stórt hús — rammgjört Lús. Hann lokar Mobits inni í húsinu. Þakið er traust. Veggirnir eru þykkir. Hvíti maðurinn kveikir upp eld inni í húsinu svo Mobits verði ekki kalt. Hann gefur Mobits mikið að eta. Maturinn er góður. Aldrei ,hafði Mobits etið jafngóðan mat. Það var bæði brauð og feitt kjöt og firnin öll af baunum. Mobits er mjög ánægður, og líður að öllu ieyti vel. En fyrir dyrum hússins er magn- aður lás til þess að Mobits geti ekki hlaupist á brott. Það er heimskulegt. Mobits hefir enga löngun til þess. Hann fær stöðugt svo mikinn mat aö hann gengur allt af frá leyfðu. Þar er nógur hiti og gott rúm. Mjög vitlaust að strjúka frá þessu. Mobits er ekk- ert fífl, og í þrjá mánuði dvelur hann þarna. — Hann stal 1 kg. af mjöli. Þess vegna elur hvíti maðurinn önn fyrir Mobits allan þennan tíma. Mobits etur þarna mörg kg. af mjöli, sykri og kjöti, og þar að auki kynstur af baun- um. Og Mobits drekkur líka mikið af tei. En þegar 3 mánuðir eru liðnir, þá opnar hvíti maðurinn húsið, og segir Mobits að nú megi hann fara. En Mobits vill ekki fara. Honum fer eins og hundin- um, sem einhversstaðar fær stöð- ugt mikið og gott æti. Þar vill hundurinn óvægur vera og eins vill Mobits fyrir hvern mun vera í húsinu, og svo fer að seinast rekur hvíti maðurinn hann burtu með harðri hendi, Svo kemur Mo- bits hingað heim í þorpið, og er sílspikaður. Þetta er háttur hvíta mannsins og er óskiljanlegt Eða þetta er heimska, — mikil heimska. — En hvað um drengir.a þína, sterku og fimu, og hungrið, sem þú verður að líða nú í elli þinni? spurði eg. — Já, það var nú hann Moklau? byrjaði Ebbit. — Sterkur drengur, greip móð- irin fram í. — Hann þoldi hvíld- arlausan róðurinn heilan dag og nóttina líka, og hann hætti ekki að róa þó hann þreyttis. Hann var líka hundkunnugur ánum og vötn- unum, og göngu laxanna í vötnin. — Það var nú hann Moklau, endurtók Ebbit, án þess að skeyta því er kerlingin truflaði hann. — Eitt vor fór hann á báti niður eftir Yukonfljótinu — ásamt öðr- um ungum mönnum — niður að Campells-víginu til þess að vérsla við hvítu mennina þar. Þar er vörubúð, full af varningi hvíta PrentsmiSjan Acta.

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.