Melkorka - 01.03.1960, Qupperneq 3
MELKORKA
TÍMARIT KVENNA
Ritstjórn:
Nanna Ólafsdóttir, Rcykjahlið 12, Reykjavik, sitni 11156 . Þára Vigfúsdóttir, Þingholtsstræti 27, Reykjavík.
Utgefandi: Mdl og menning
JAKOBÍNA SIGURÐARDÓTTIR:
SONARGÆLA
Ymur mér i brjósti
andvarp milljóna,
eitt í öllum
áttum veraldar:
Hvað bíður handa
hvitra og dökkra,
hlýrra, lifandi
lianda mannsbarna?
Sé ég í hug mér,
sé i augu þin,
sé á hönd þina,
hugljúfi mömmu.
Höndin þín smáa,
hlý og lifandi,
opnum lófa
við andlit mi.'t gœlir.
Veit ég i öllum
áttum veraldar
eins gcela við móður
ungar hendur,
brúnar og gular,
blakkar og hvitar,
hlýjar, lifandi
hendur mannsbarna.
Handa njóti líf
hvitra og dökkra,
hlýrra, lifandi
handa mannsbarna.
Sé ég í hug mér,
sé á hönd þína,
liþra smáfingur,
lófa þinn mjúkan.
Kyssi ég i lófa þinn
kærleiksþelið,
ástúð í óvita
unga fingurgóma.
Megin og mildi
mannshönd smárri vaxi.
Beri líf ijósi
Ijúflingshönd hvit.
MELKORKA
3