Melkorka - 01.03.1960, Page 5

Melkorka - 01.03.1960, Page 5
þrælkunarvinnu barna í verksmiðjum, og krafan um 10 klukkustunda vinnudag var þá stórt spor í framfaraátt. En fyrst og fremst var krafan urn frið, áskorun til þjóð- anna að leggja niður vopnin og ræða á- greiningsmálin á alþjóðaþingum, táknræn fyrir daginn frá öndverðu. Jafnvel eftir að fyrri heimsstyrjöldin skall á fékk Clara Zet- kin því til leiðar komið að friðarþing kvenna var haldið í Sviss 1915 og vakti þingið athygli fyrir hinar djörfu ályktanir sem þar voru gerðar. En því var jafnað við landráð að tala um afvopnun og frið á þess- um árum. Eftir heimsstyrjöldinasíðustu mæltu kon- ur sér mót víðsvegar úr lieiminum, konur frá hinum stríðsþjökuðu löndum og fanga- búðum nazista. Þær strengdu þess heit að leggja fram alla krafta sína í þágu friðarins og taka upp merki 8. marz fyrir réttinda- málum kvenna og verndun barna í heimin- um. Alþjóðabandalag lýðræðissinnaðra kvenna var stofnað, stærsta samfylking kvenna sem nokkru sinni hefur verið uppi í heiminum og hefur að baki sér á annað hundrað milljónir kvenna. Og svo hátt og vítt er til veggja innan samtaka þeirra að konur hvar sem er á hnettinum sem leggja vilja friðaröflunum lið geta án tillits til stjórnmálaskoðana, litarháttar og trúmála fylkt sér þar hlið við hlið. Hin nýja kona jDekkir orðið mátt sam- taka sinna. Hún hefur barizt til sigurs fyrir dýrmætum mannréttindum, jrótt enn skorti mikið á að konur á vesturhveli jarðar búi við það jafnrétti sem konur í löndum sósía- lismans njóta eins og í Sovétríkjunum og Kína. Tvær heimsstyrjaklir hafa geisað á öldinni, jrar sem konan hefur staðið við hlið mannsins og gegnt ábyrgðarmiklum störfum fyrir jjjóðfélagið. Þær hafa getið sér ódauðlegan orðstír í andspyrnuhreyf- ingu þjóðanna gegn fasismanum, setið í fangelsum og verið pyndaðar. Og þessar konur hikuðu ekki við í moldviðri kalda stríðsins að rífa í sundur hið tilbúna járn- /---------------------------------------> ODDNÝ GUÐMUNDSDÓTTIR: SANDUR Hún þátti stórorð og þrœtugjörn, og því var hún flœmd úr landi. Hún hugsar um ellefu blökkubörn, berfcett i þurrum sandi. Þau leita og hrópa: „Mamma min!“ En mamma er farin úr lacidi. Þau gleyma að si?ma um gullin sin, sem grafast i þurrum sandi. Svitinn vcetlar um hrokkið hár, þvi heitt er suður i landi. Röddin er hás, og tár og tár týnist i þurrum sandi. Þeir hrósa eklti sigri um eilif ár, sem auðgast i stolnu lattdi og hirða ekki um blökkubarna tár. — Þeir byggja sitt hús á sandi. v_______________________________________y tjald stjórnmálamannanna, eins og ein for- ustukonan komst að orði, og rétta vinar- og systurhönd til kvenna með ólíkustu stjórn- málaskoðanir. Og konurnar hafa skynjað rétt, því alltaf verða Jiær raddir háværari og háværari sem vilja fara leið vináttu og samvinnu meðal þjóða. Og þar tóku konur forustuna 1945 þegar Aljíjóðabandalag lýð- ræðissinnaðra kvenna var stofnað. A1 j>jóðabará11udagurinn 8. marz hefur með hverju ári fengið víðari og dýpri merk- ingu. Undir merki hans ganga konur af öllum kynþáttum, þjóðfélagsstéttum og trú- arbrögðum og mótmæla vígbúnaðarkapp- lilaupi og kjarnorkustyrjöld og krefjast að gengið verði til samninga um afvopnun í heiminum. Nú er það ekki lengur tiltölu- lega fámennur hópur kvenna eins og á dög- um Clöru Zetkin, sem hefur upp raust sína móti styrjaldaröflunum heldur helmingur mannkynsins, en konurnar sem áður fremstar í flokki. íslenzkar konur hafa einn- MELKORKA 5

x

Melkorka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.