Melkorka - 01.03.1960, Blaðsíða 10

Melkorka - 01.03.1960, Blaðsíða 10
Jónina Jónatans- dóttir, formaður Verkakvennafél. Framsóknar. átti í Kaupmannahöfn 1906. Þangað fór frú Bríet fyrir áhuga sakir til að kynnast mál- efnum Alþjóðasambandsins. Þegar heim kom skrifaði hún um kvennaþingið í blað sitt og skýrði frá störfum þess og stefnuskrá. Hið íslenzka kvenfélag sem hafði liaft póli- tísk réttindi kvenna ástefnuskrá sinni, hafði horfið frá því stefnuskráratriði við dauða Þorbjargar Sveinsdóttur og brottför Ólafíu Jóhannsdóttur. Bríet sneri sér nú til Kven- félagsins og lagði fast að stjórninni að fé- lagið tæki upp aftur liina upprunalegu stefnuskrá. Formaður Kvenlélagsins tók því fjarri og sagði að félaginu hefði vegnað miklu betur síðan það lagði pólitíkina á hilluna. Frú Bríet boðaði þá ásamt nokkr- um áhugakonum til stofnunar Kjvenrétt- indafélagsins 27. janúar 1907. Kvenréttindafélagið sneri sér strax að því að vekja áhuga kvenna fyrir réttindamál- um, kosningarétti og kjörgengi, fullu jafn- rétti við karla, og að því að glæða skilning íslenzku konunnar á aðstöðu sinni í þjóð- félaginu. Almenn skólaskylda er lögfest 1908. Það sama ár flytur Bríet fyrirlestur um kven- réttindamál víða um landið og stofnaði sambandsdeildir. Hvetur lnin konur til að koma kvenréttindamálum inn á þingmála- fundi og undirbúa áskorun til Alþingis um málið. Varð samkomulag við Hið íslenzka kvenfélag um að það gengist fyrir undir- skriftasöfnuninni og unnu bæði félögin að málinu. 12000 undirskriftir bárust. Eins og að líkum lætur var kvenréttinda- baráttan nátengd sjálfstæðisbaráttu þjóðar- innar. Konurnar börðust fyrir kosninga- rétti og kjörgengi, fyrir rétti stúlkna til skólagöngu og jöfnum rétti til námsstyrkja og embætta. Þessar konur lyftu Grettistaki í stórgrýtisurð fordóma og hégilju. A þriðja fundi kvenréttindafélagsins ber frú Guðrún Pétursdóttir fram tillögu um að KRFÍ taki nýtt mál á dagskrá, lagafrumvarp um rétt- indi óskilgetinna barna og mæðra jreirra. Féll þessi tillaga í góðan jarðveg og leiddi af sér eftir harða baráttu lög um réttindi óskilgetinna barna 1921 (sem höfðu í för með sér ört minnkandi barnadauða). 1. janúar 1908 ganga í gildi ný kosninga- lög til bæjarstjórna. Með þeim lögum fá konur sama kosningarétt og karlar og kjör- gengi til bæjarstjórna. K.R.F.Í. beitti sér fyrir kvennalista við bæjarstjórnar-kosning- arnar. Kosningin varð mjög söguleg, en fyr- ir frábæran dugnað og skipulagningu kvennanna komst allur kvennalistinn að. Þá verður 1911 að lögum að konur öðlast rétt til allra skóla, námsstyrkja og embætta með sömu skilyrðum og karlmenn. Nú virt- ist sem langþráðum áfanga væri náð, en þó líða 13 ár þar til fyrsta konan notar sér rétt- inn til embætta, en þá er Katrínu Thorodd- sen veitt Flateyjar-læknishérað. Árið 1913 kemur frú Jónína Jónatans- dóttir með þá tillögu í K.R.F.Í. að félagið beiti sér fyrir stofnun verkakvennafélags til að bæta launakjör verkakvenna. Konur höfðu þá 15 aura um klukkutímann en karlar 35 aura þó þau ynnu saman við fisk- burð. Konur lögðu á sig sömu störf og karl- menn í landi, eyrarvinnu, saltburð og kola- vinnu og vatnsburð. Haustið 1914 var síðan verkakvennafélagið Framsókn stofnað og 10 MELKORKA

x

Melkorka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.