Melkorka - 01.03.1960, Side 22

Melkorka - 01.03.1960, Side 22
Kvenstúdentafélag íslands Eftir Ragnheiði Guðmundsdóttur, lcekni Árið 1928 þ. 7. apríl komu 6 konur sam- an til að stofna félag, sem þær nefndu Félag íslenzkra háskólakvenna. Frú Björg C. Þor- láksson, dr. phil., kom með uppástunguna um félagsstofnunina á þessum fyrsta fundi. Til bráðabirgða voru tvær konur kosnar í stjórn, þær Katrín Thoroddsen, læknir, for- maður og Anna Bjarnadóttir, B. A., ritari og gjaldkeri. Það var strax ákveðið, að fél- agið gerðist aðili að alþjóðasambandi há- skólakvenna, og á stjórnarfundi þeirra sam- taka, sem það ár var haldinn í september í Madrid, var aðild íslenzka félagsins sam- þykkt skilyrðislaust, eins og segir í bréfi al- þjóðasambandsins til íslenzka félagsins. Fyrsta verkefnið var eðlilega að semja lög fyrir félagið og voru þrjár konur kosnar til þess að sjá um það verkefni, þær Anna Bjarnadóttir, B. A., Kristín Ólafsdóttir, læknir og Laufey Valdemarsdóttir, cand. phil. í fyrstu lögum félagsins segir um til- gang þess, að hann sé: 1) „að efla kynningu og samvinnu ís- lenzkra háskólakvenna, vinna að hagsmun- um þeirra og áhugamálum og auka sam- band þeirra við umheiminn“. 2) „að taka þátt í starfsemi alþjóðasam- bands háskólakvenna og stuðla þannig að aukinni samúð og samvinnu háskólakvenna um allan heim“. í lögum félagsins er gert ráð fyrir, að all- ir kvenstúdentar geti orðið meðlimir í fé- laginu, en formaður, ritari og gjáldkeri þurfi að vera háskólakonur. Það var gert með ldiðsjón af lögum alþjóðasambands há- skólakvenna. Þegar lög höfðu verið samin og samþykkt, var fyrsta formlega stjórnin kosin. Ffana skipuðu Katrín Thoroddsen, 22 Ragnheiður Guðmunds- dóttir formaður, Anna Bjarnadóttir og Laufey Valdemarsdóttir. Það voru eðlilega á þess- um árum eins og er ennþá, fleiri kvenstúd- entar en háskólakonur í félaginu, jrví varð það að ráði, að á fundi félagsins 16. apríl 1930 var nreð lagabreytingu breytt upphaf- lega nafni félagsins, Félag íslenzkra háskóla- kvenna, í Kvenstúdentafélag íslands. Lög- unum var í eðli sínu ekki breytt. Enn sem fyrr var gert ráð fyrir, að formaður og rit- ari væru háskólakonur, svo og að þær önn- uðust samskiptin við alþjóðasambandið, svo sem að sækja alþjóðaráðstefnur og stjórnar- fundi, eftir því sem við verður komið. Á þessum fyrstu árum var kvenstúdentafélag- ið fámennur félagsskapur. Það var þá ekki eins algengt og nú, að konur legðu út í langt nám, enda ekki svo ýkja langt síðan að stúlkum var leyfilegt að sitja í Mennta- skólanum. Laufey Vaklemarsdóttir var MELKORKA

x

Melkorka

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.