Melkorka - 01.03.1960, Page 26
Viðtal við Sigríði Eiríksdóttur
formann hjúkrunarfélags íslands
Ég hef hrifizt af eldmóði þess fólks sem liefur skipað
sór saman og gem brautryðjendur fyrir afvopnun og
varanlegum friði í hciminum .. .
Sigriður Eiriksdóltir
Hver virðist yður lielzti munur á aðstöðu
og viðhorfum ungra kvenna þegar þér vor-
uð að alast upp, og ungra kvenna i dag?
Mér virðist viðhorf þessara mála vera
mjög breytt frá því sem var á æskuárum
mínum. Ekki sízt finnst mér breytingin
liggja í því, hversu auðveldara er nú að afla
sér bóklegrar menntunar en þá var, — ef til
vill of auðvelt nú, ef dæma skal eftir hinum
margumrædda námsleiða, sem margir ungl-
ingar virðast haldnir af. Æðsta ósk mín var
að komast í menntaskólann og verða stúd-
ent, en það var gersamlega ókleyft vegna
fjárskorts. Sennilega hefur það verið frem-
ur sjaldgæft — að minnsta kosti á undan-
gengnum 20 árum —, að stúlkum hafi verið
ókleyft að stunda langskólanám, ef liugur
þeirra hefur verið sterkur í þá átt. Það staf-
ar auðvitað m. a. af því, að möguleikar til
vellaunaðrar atvinnu í sumarfríum eru all-
ir aðrir en þá var, og geta því sparneytnir
unglingar sjálfir létt rnikið undir með nám
sitt, og gera margir hverjir.
Hvað viljið þér segja um aðstöðu kvenna
til að sinna félagsmálum og gegna störfum
í þágu þeirra, jafnframt þvi að rœkja hlut-
verk si'.t, sem móðir og húsmóðir?
í rauninni er mjög erfitt að svara þessari
spurningu, því hún er svo margþætt, sökum
þess að ekki er sama hvaða störf unnin eru í
þágu félagsmála. Þótt mér sé ekki vel kunn-
ugt um starfsemi pólitískra kvenfélaga, geri
ég ráð fyrir að mikil vinna sé í sambandi
við þau. En einna tímafrekust álít ég vera
störf í stéttarfélögum vegna þess, að þar
hvílir krafa margra meðlima á hinum fáu,
sem kjörnir eru til stjórnar- og fram-
kvæmdastarfa. Hinir gera oftast ekki neitt
nema setja frant kröfur sínar. í margskonar
félagsskap, sem byggður er upp í hugsjóna-
skyni, er aftur á móti auðveldara að dreifa
starfinu, og nota á þann hátt alla starfs-
krafta hinna áhugasömustu meðlima.
Ég hef alltaf álitið það vera mjög örðugt
fyrir konur með uppeldisskyldur, að vera
fjarri heinrili sínu mikinn hluta dags að
staðaldri, og gildir það einu hvort um at-
vinnu eða félagsmálastarf er að ræða. — Ég
skil það blátt áfram ekki, hvernig kona get-
ur komizt yfir tvöfalt starfssvið, þar sem
annað þeirra að minnsta kosti er svo tíma-
frekt, að engin takmörk eru á. Til jress að
26
MELKORKA