Vesturland - 24.12.1949, Blaðsíða 17
VESTURLAND
17
1 ýmsum sveitum er ræktun
með nýtisku verkfærum svo áð
segja ókleif vegna þess, að það
er ekki hægt að koma verk-
færunum til bændanna. Það er
þessvegna í þágu mjólkurlit-
illa kaupstaða og þorpa, ekki
siður en sveitanna, sem vegir
eru um þær iagðir. Þetta er
staðreynd. sein ekki verður
fremur á móti mælt hér við
Djúp en annarsstaðar.
Byggðin norðan
Bjarnarnúps.
Ég hefi hér að framan rætt
nokkuð vegamál byggðarlag-
anna við Djúp. Á. samgöngu-
mál hreppanna fyrir norðan
Bjarnarnúp hefur ekki verið
drepið. 1 öðrum þessara
hreppa, Sléttuhreppi, var fyr-
ir nokkrum árum hafist handa
um þjóðvegargerð milli þorp-
anna Hesteyrar og Látra. En
við hið mikla útfall, sem varð
úr þeim hreppi, stöðvuðust þær
framkvæmdir.
1 Grunnavíkurhreppi hefur
verið gert akfært um Grunna-
vilc til nokkurs hagræðis fyrir
byggðina þar. En hver, sem
framtið byggðarinnar norðan
Skorarheiðar verður, er auð-
sætt að vegagerð frá Stað að
Dynj anda hlýtur að verða haf-
in um Staðarheið'i áður en
langt um líður enda mjög auð-
veld.
Fáein orð um flugið.
Áður en ég lýk þessum hug-
leiðingum um samgöngumál
fólksins í kaupstöðum, þorpum
og sveitum Isaf j arðard j úps,
vil ég aðeins vikja fáeinum
orðum að yngsta þætti sam-
gangna okkar, fluginu. Hinar
tíðu flugsamgöngur við Isa-
f.jörð undanfarin ár hafa skap-
að almenningi þessara byggða-
laga mjög aukið hagræði.
Brestur þó töluvert á, að góð
sldlyrði séu þar fyrir hendi.
Það er fyrst nú, að flugskýli er
að verða tilbúið á Isafirði. Fyr-
ir tiltölulega stuttu síðan hefur
verið sett hér upp fullkomin
talstöð og hlustunarstöð fyrir
flugvélar. Enginn flugvöllur
fyrir landflugvélar er ennþá til
í héraðinu. Þörf slíkra lend-
ingarstöðva er þó fyrir hendi
hér ekki síður en annarsslaðar.
Skilyrði til þess, að byggja
flugvelli hafa að vísu ekki ver-
ið rannsökuð hér til hlýtar.
Vitað er þó, að á Melgraseyri
eru möguleikar til þess. I
mynni Syðridals í Bolungarvík
hefur einnig komið til mála að
hægt væri að gera flugvöll.
Ég hefi rætt þessi mál við
ýmsa ráðamenn í flugmálum
olckar og er mér kunnugt um,
að þeir hafa fullan hug á að
gera flugsamgöngur hingað
vestur eins öruggar og gagn-
legar og frekast er unnt. En
sjálfir megum við ekki láta
okkar hlut eftir liggja um að
sýna áhuga og framtak í þess-
um málum.
Samgöngui* og framfarir.
Hraðinn er megineinkenni
nútímans, hraði í samgöngum,
atvinnuháttum og öllu lífi og
starfi fólksins um víða veröld.
Vera má, að liann sé orðinn of
mikill og að ýmiss verðmæti
hafii glatazt í hringiðu hans og
þess eirðarleysis, sem víða set-
ur nú svip sinn á athafnir
mannkynsins. Það er þó víst,
að gi’eiðar sanxgöngur og full-
komin samgöngutæki eru hvar-
vetna þýðingannikið skilyrði
margháttaðra umbóta og fram-
fara.
Við Vestfirðingar höfurn
lengur en annað fólk í þessu
landi, búið við einangran og
vegleysi. Það hefur valdið okk-
ar margskonar ei'fiðleikum og
óhagræði. Ég er þeiirar skoð-
unax’, að hinir nýju vegir, sem
tengja byggðirnar til sjávar og
sveita saman, skapi nýj a mögu
leika til eflingar atvinnulífi
okkar, félagslegu samstarfi og
þi'oska fólksins. Með þó ósk í
huga, að svo megi verða, árna
ég öllum Vestl’irðingum og les-
endum Vestui'lands gleðilegi’ar
j ólahátíðar.
Jarðgöngin í Arnarneshamri.
5 ára, lífi þeirra og leikjum um
eins árs skeið.
Sagan gerist í Þýzkalandi
fyrir fyrra stríð og lýsir vel
högum og háttum fólks á þeim
tíma. Ems og fyrirsagnir kafl-
anna bera með sér fjallar sag-
an um hversdágslega viðburði
Þar er enginn tilbúinn „hasai’“.
Frásögnin er látlaus og geð-
þekk og lesandinn fylgist af á-
huga íneð litlu skólameistara-
dæti’unum og öllu því er á
daga þeirra di’ífur.
Málið á bókinni er prýðilegt,
orðaval fjölbi’eyttara og kjam-
meira en tíðkast nú orðið yfir-
leitt á barnabókum. Er það
mikill kostur. Þetta er góð bók,
sem börn og unglingar hafa
gott af að lesa.
Sigurður Guðj ónsson hefur
teiknað smekklegar myndir í
bókina og er allur frágangur
hennar hinn snotrasti. Bókin er
tilvalin jólagjöf fyrir börn og
unglinga.
Hátíðamessur:
Isafjörður:
Aðfangadagur kl. 6 e.h.
Jóladagur kl. 11 f.h. Bai’na-
messa.
Jóladagur kl. 2 e.h. Almenn
messa.
Jóladagur kl. 3 e. h. Messað í
sj úkraliúsinu.
Gamlársdagur kl. 23 e. h.
Hnifsdalur:
Aðfangadagur kl. 8 e. h.
Annar jóladagur kl. 11 f.h.
Bai'namessa. Klukkan 2 e. h.
Almenn messa.
Nýjársdagur kl. 2. Ahn. messa.
Prentstofan Isrún h. f.
Nr. 39./m9.
Tilkynning
Viðskiptanefndin hefur ákveðið nýtt hámarksverð á smjör-
líki, og verður það framvegis að frádreginni niðurgreiðslu ríkis-
sjóðs sem liér segir:
I heildsölu ..... kr. 3,68
I smásölu ....... — 4,82
.... _ /
Hámarksverð á óniðurgreiddu smjörlíki er kr. 2.20 hæri’a
pr. kg.
Söluskattur er innifalinn í verðinu.
Reykjavík, 15. des. 1949.
VERÐLAGSSTJÓRINN.
Karlakór ísafjarðar
hélt söngskemmtun í Alþýðu
lnisinu s. 1. laugardagskvöld. Á
söngskránni voru 15 lög, sem
kórinn söng öll með þrýði og
við framúrskarandi góðar við-
tökur áheyrenda. Varð kórinn
að endurtaka mörg lögin og
syngja aukalög.
Þessi fyrsta söngskemmtun
Karlakórsins var mildll sigur
fyrir hann og söngstjórann,
Ragnar H. Ragnai’, sem stjói'n-
aði söngnum af frábærri
smekkvísi og lifandi fjöi'i. Er
undravert hve tekizt hefur að
ná miklum ái’angri á jafn stutt
um tíma, því margir af félög-
um kórsins byrjuðu æfingar
fyrst í haust..
Góð barnabók
Prentstofan Isrún h.f., hefir
gefið út nýja barnabók eftir
Herthu Schenk-Leósson, sem
heitir „Litlu stúlkurnar í hvíta
húsinu. Bókin er rúmar 80 bls.
í 8 köflum og heita þeir:
„Ingu líkar ekki miðdags-
maturinn“.
„Páskahérinn kemur“.
„Fyi’sti skóladagur Helgu“.
„Skólatelpui’nar móta úr
leir og hlýða á ævintýri“.
„Helga og Inga fá misling-
ana“.
„Húri’a við förum norður að
sjó“.
„Helga heldur afmælisveizlu“.
„Aumingja Fiddi deyr“.
„Fyrstu einkunnirnar henn-
ar I4elgu“.
,Senn korna jól“.
Sagan segir frá tveim litlum
systrum, Helgu 6 ára og Ingu