Heilbrigðismál - 01.07.1966, Blaðsíða 14
Heilahristincjur
(Úr timaritinu Helse)
Sé meðferð á einföldum heilahristingi
rétt, er hann að jafnaði hættulaus og veldur
engu varanlegu meini.Áverkar á höfði mega
heita daglegir viðburðir í umferðarslysum
nútímans. Fólki stafar yfirleitt mikill ótti
af heilahristingingi og öðrum meiðslum,
sem snerta höfuðið og gerir sér miklar á-
hyggjur út af afleiðingum þeirra. Heila-
hristingurinn er algengastur allra áverka á
heilann. Einkenni hans, sem eru glögg og
ákveðin, hafa læknarnir þekkt frá ómuna-
tíð, en hins vegar hefur það ekki legið Ijóst
fyrir hvað raunverulega orsakaði þau. Eins
og nafnið bendir til, var haldið að heilinn
hristist þegar höfuðið yrði fyrir miklu höggi
eða árekstri og að samtímis skeði miklar
breytingar eða truflanir á blóðrás hans.
Ameríski læknirinn Scott, telur sig hafa
fært sönnur á með dýratilraunum hvað
raunverulega gerðist þegar fólk fengi heila-
Iiristing. Hann segir: „Eðlisfræðin kennir
próf. Ólafur Bjarnason fyrirlestur um
„Patologisk-anatomiska synspunkter".
Rúmlega 70 þátttakendur sátu mótið,
sem þótti takast með afbrigðum vel, enda
allur undirbúningur og móttökur með ein-
stæðum myndarbrag.
Ferðastyrk frá „Nordisk Cannerunion"
Idaut að þessu sinni Finninn Heikki J.
Miettinen læknir, 10 þús. sænskar krónur,
en það er vani að úthluta vísindastyrk á
þessum þingum til einhvers vísindamanns,
sem leggur stund á krabbameinsrannsókn-
ir. F.inn íslendingur hefur hlotið þennan
styrk, Hrafn Tuliníus læknir, 1963, en það
þykir mikil viðurkenning og heiður að fá
þennan styrk.
okkur, að breyti kúlumyndaður hlutur um
lögun, hækkar um leið þrýstingurinn inni í
kúlunni." Högg sem hittir höfuð manns
eða dýrs, breytir lagi þess og um leið þrýst-
ingnum innan þess. Ef hann veitti hundum
í svæfingu útreiknað högg á höfuðið, gat
hann sýnt fram á að þrýstingurinn inni í
hausnum óx verulega. Með því að staðdeyfa
höfuð hundsins áður en hann veitti því
höggið, komst hann að athyglisverðum nið-
urstöðum. Þegar þrýstingurinn inni í
Iiausniun óx, sem svaraði rúmlega systol-
iskum jrrýstingi hjartans, eða m. ö. o. þeim
þrýstingi, sem myndast í hjartahólfunum,
þegar þau draga sig saman og dæla blóðinu
út í slagæðarnar, missti dýrið meðvitund, þó
að þrýstingshækkunin stæði aðeins brot úr
sekúndu. Hins vegar missti hundurinn ekki
meðvitund. þótt þrýstingshækkunin stæði
miklu lengur ef hann fór ekki fram úr
systoliska þrýstingnum. Ykist þrýstingurinn
svo að hann væri jafn eða örh'tið hærri en
systoliski þrýstingurinn, stóð meðvitundar-
leysið í tvær mínútur þó þrýstingshækkun-
in stæði aðeins hálfa sekúndu. Scott læknir
dróg þá ályktun af tilraunum sínum, að
höggið, sem lýstur höfuðið, orsaki breyt-
ingu á lagi jiess og að um leið hækki þrýst-
ingurinn innan þess. Ef þrýstingsaukningin
fer fram úr systolu)irýstingnum þó ekki sé
nema brot úr sekúndu, veldur það meðvit-
undarleysi sem sennilega orsakast af að
blóðrennsli til heilans hindrast.
Súrefnisneyzla heilans er geysimikil og
hann er með afbrigðum viðkvæmur fyrir
súrefnisskorti þó að hann standi örstutt. Ein-
kenni heilahristings hjá mönnum líkjast
mjög þeim, sem Scott læknir fann við til-
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL
14