Samtíðin - 01.07.1935, Blaðsíða 8

Samtíðin - 01.07.1935, Blaðsíða 8
6 SAMTÍÐIN TIL ÍHUGUNAR. Sanngirni og rökrétt hugsun eru en ekki að dyrum viskunnar. lyklar að dyrum þekkingarinnar, Philip Cabot. Bjartsýnn maður sér altaf opnar leiðir, hvernig sem örðugleikarnir þyrma yfir hann. Bölsýnn maður sér jafnan örðugleika, hvernig sem lánið leikur við hann. Er það dapurlegt eða gott og blessað, að við skulum aldrei þekkja neitt fólk til hlítar í lífinu nema okkur sjálf og stundum ekki einu sinni það? Enginn maður getur nokkurn tíma þekt annan mann gersamlega, enda þótt þeir hafi verið saman alla ævi. Við lifum og deyjum einmana. Engin jarðnesk vera fær skilið okkur til fullnustu né við hana. Þess vegna þurfum við svo mjög á guði að halda. Richard King. Glæsilegur, fullþroska maður er eins og sverð, sem er til sýnis í búðarglugga. Þeir, sem horfa á hið spegilfagra blað þess, hafa ekkert hugboð um alla þá fágun, sem stálið í því hefir orðið fyrir, áður en sverðsblaðið varð til í þessari mynd. Henry Ward Beecher. Mörg góð áform verða skeytingarleysinu að bráð. Ef við vanrækj- um að framkvæma gott áform vegna kæruleysis, óþolinmæði eða mak- ræðis, höfum við látið tækifæri ganga okkur úr greipum, spilt sjálfum okkur og laumast burt frá þe:m gæðum, sem v.ið eigum kost á að öðlast. Að vera í heiminn borinn, en hafa aldrei fæðst til lífsins, táknar eyðilegging. Ef við ýtum skipi á flot og hirðum síðan ekki um það, hlýtur skipið að farast. Sá maður, sem á sér hæfileika og grefur pund sitt í jörðu, er illur þegn, því að lokum munum við verða dæmd ekki einungis fyrir það, sem við höfum gert, heldur og fyrir það, sem við hefðum getað gert. Malthe Babcock.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.