Samtíðin - 01.07.1935, Blaðsíða 26

Samtíðin - 01.07.1935, Blaðsíða 26
24 SAMTÍÐIN inni stafsetningu, og gera, meðal ann- ars þess vegna, síst kröfur til að verða keyrð í dauðar viðjar hótfynd- inna skólaspekinga, sem vilja fyrir hvern mun, dauðum höndum, þræla öllu út úr sambandi við lifanda líf og heilbrigða skynsemi, og setja dauðar reglur að drottinvaldi yfir hverju því, sem þeir koma nálægt. íslenskir nú- tímalesendur eiga kröfu á því, að þessu málfræðingabrauki sé hætt, og alþýðuútgáfum Islendingasagna sé leyft að fylgja hinu lifandi máli þjóð- arinnar öld fram af öld, þótt bókstaf- ir séu lagðir niður og aðrir upptekn- ir, hljóð deyi út og önnur myndist. Málið er í eðli sínu hið sama, þrátt fyrir kvikandi gára á yfirborðinu. — Samræmda stafsetningin, þetta hvimleiða málfræðinga-esperantó, hrindir lesandanum frá sögunum, eins og allar dauðar reglur hljóta að gera, en með eðlilegri stafsetningu verður hverjum manni augljóst, sem les, að sögustíllinn er ekki dauður bókstaf- ur, heldur okkar eigið mál, sem vér notum þann dag í dag, fagurt og lif- andi nútímamál. Eg skal tilfæra hér upphafið á Landnámu og upphafið á íslendinga- bók með þrem ritháttum, a) stafsetn- ingunni eftir því, sem næst verður komist handritunum, b) hinni sam- ræmdu stafsetningu málfræðinganna, og c) almennri nútímastafsetningu. 1. dæmi: a) I Alldar fars bók þeiri er Beda prestr heilagr gerdi er getid eylandz þess er Thile heiter ok a bókum er sagt at liGi .vj. dægra sigling nordi'

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.