Samtíðin - 01.07.1935, Blaðsíða 10

Samtíðin - 01.07.1935, Blaðsíða 10
8 SAMTÍÐIN tennur, sem allir karlmenn urðu stór- hrifnir af: Hún var ættuð að austan, ekkja fögur og rík, en hárið og tennurnar hvítu hvort tveggja úr Reykjavík. Sami glettnislegi stígandinn er í kvæðinu um bókina, sem skáldið fékk léða hjá kunningja sínum af því, hve fallegt bandið var á henni og upp- hafskvæðið í henni var snoturt: En að fletta þér allri var erfiði’ og tímaskaði, því í þér fann ég ekkert nýtt, það var alt á fremsta blaði. II. Hver er þessi maður, sem kallar sig Örn Arnarson og yrkir öðruvísi en aðrir menn? hugsuðu ýmsir Ijóð- elskir Islendingar árið 1920. Flestum varð ógreitt um svör. Einhvern heyrði ég segja, að þessi maður ætti heima í Vestmannaeyjum, en ekki kunni sá hinn sami meira að segja um skáldið, og ekki vissi hann, hvað Örn hét réttu nafni. Fjögur ár liðu. Þá kom út lítil ljóðabók eftir Örn, og nefndist hún Illgresi. Nafnið á bókinni bar vott um yfirlætisleysi þessa sérkennilega höfundar, sem vildi um fram alt dylj- ast og fá að lifa óáreittur, en það var vægast sagt að því leyti rangnefni, að hvergi skeikaði höfundi um listar- tök. Það var sami ilmurinn úr þessu grasi og verið hafði af smákvæðunum hans 1920. Nú tjáði og ekki að dylj- ast lengur. Það varð landfleygt, hver maðurinn væri í raun og veru. En í 3. hefti Stuðlamála, sem út kom árið 1932, kom loks út smágrein um skáld- ið og mynd af því framan við nokkr- ar lausavísur, er þar birtust eftir Örn. Magnús Stefánsson heitir þetta skáld réttu nafni og á heima í Hafn- arfirði. Magnús er fæddur 12. des. árið 1884 að Kverkártungu á Langa- nesströnd í Norður-Múlasýslu. Hann hefir verið í Flensborgarskóla og Kennaraskólanum, sinn veturinn í hvorum, en annars unnið fyrir sér með allskonar störfum, m. a. versl- unar- og skrifstofustörfum, og leit- að sér mentunar með því að lesa bók- mentir og ferðast, þegar hann hefir átt þess kost. III. Það var auðséð á þeim kvæðum, er birtust eftir Örn Arnarson 1920, að þar var enginn hálfvaxinn oflátung- ur á ferð. Þessum höfundi lá ekkert á að opinbera heiminum, hver hann væri. Hann gaf sér tíma til að hugsa málið og fága kvæðin sín. í Stuðla- málum er sagt, að Örn hafi farið víða um land og víða verið. „Hann er orð- lagður göngugarpur, og kunnugir fullyrða, að nálega sé hann búinn að ganga um alt landið þvert og endi- langt“, stendur þar. Þetta lýsir mann- inum að verulegu leyti. En hitt sýna kvæði hans, að hann muni einnig víð- förull maður um lönd ekki einungis íslenskra, heldur og erlendra bók- menta. Mér var sýndur þessi merki- legi maður tilsýndar á götu í Hafn- arfirði haustið 1931 og jafnframt sagt, að sá væri háttur Arnar skálds, að hann ynni stundum fyrir sér um hríð, en settist síðan í helgan stein,

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.