Samtíðin - 01.07.1935, Blaðsíða 16

Samtíðin - 01.07.1935, Blaðsíða 16
14 SAMTÍÐIN ari, þótti afturhaldssamur í skoð- unum. 5. Strindberg, August, (1849— 1912), alþekt sænskt skáld. 6. Heidenstam, Verner von, (1859 —), eitt besta Ijóðskáld Svía á síðari árum. 7. Djákninn í Leksand, eitthvert minni háttar sænskt skáld. 8. Sainte-Beuve (1804—69), mikils metinn frakkneskur ritdómari. 9. Lamartine (1790—1869), frakk- neskt skáld. 10. Stendahl, gervinafn fyrir M. H. Beyle (1783—1842). 11. Balzac, Honoré de (1799—1850), frakkneskur rithöfundur. 12. Janin, Jules (1804—74), frakk- neskt tískuskáld. 13. Lafontaine, Jean de, (1621— 95), frakkneskur höfundur, frægur fyrir „Dæmisögur" sín- ar. 14. Boileau (1636—1711), frakk- neskt skáld og ritdómari. 15. Moliére (1622—73), frægasta leikritaskáld Frakklands. 16. Racine (1639—99), annað stór- frægt leikritaskáld, frakkneskt. I. L. L. Leikkona nokkur var óánægð með leik eins af mótleikendum sínum og mælti: — Ef þér væruð maðurinn minn, þá skyldi ég gefa yður svo duglega á hann, að hausinn fyki af yður. Leikarinn horfði góðlátlega á leik- konuna og mælti: — Kæra frú, ef ég væri maðurinn yðar, mundi ég þakka guði fyrir að sleppa svo vel. Sá var góður -- Einu sinni kom maður nokkur inn í rakarastofu og hafði með sér lítinn dreng. Maðurinn bað rakarann um að raka sig og klippa og þvo sér auk þess rækilega um höfuðið. Þegar öllu þessu var lokið, mælti gesturinn kæruleysislega: — Hvernig er það, seljið þið tó- baksvörur? — Nei, því miður gerum við það nú ekki, ansaði rakarinn, — en það er tóbaksverslun hérna hinu megin við götuna, beint andspænis okkur. — Ágætt, mælti gesturinn, — þá ætla ég að skreppa þangað og kaupa mér eitthvað að reykja; þér klippið drenginn á meðan. Tuttugu mínútur liðu, og rakarann fór að lengja eftir manninum, en það bólaði ekki á honum. — Hann ætlar að vera nokkuð lengi, hann pabbi þinn, mælti hann loks við drenginn. Hann hlýtur að fara að koma. — Þetta var ekki faðir minn, ans- aði drengurinn. — Ég hefi aldrei séð þennan mann fyr; hann mætti mér á götunni og spurði mig, hvort ég vildi ekki láta klippa mig ókeypis. Og ég hafði auðvitað ekkert á móti því. Golf-kennarinn (sem sér hvar tvær stúlkur koma gangandi): Ætlið þið að læra golf? Önnur stúlkan: Ekki ég, fheldur tinstiilka mín; ég lærði það í gær.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.