Samtíðin - 01.07.1935, Blaðsíða 21

Samtíðin - 01.07.1935, Blaðsíða 21
SAMTÍÐIN 19 veturna 1802—’03 og 1803—’04, og hafa þeir fyrirlestrar vafalaust haft geysimikil áhrif á unga mentamenn, sem þá dvöldust í Kaupmannahöfn. Það, sem hér skiptir mestu máli, er, hvort Bjarni Thorarensen muni hafa hlustað á þá. Ég hefi ekki við hönd- ina nein gögn, er fái skorið úr þessu, né heldur úr því, hvort þeir Bjarni og Oehlenschláger hafi þekst per- sónulega. Ef til vill er hægt að svara því með fullri vissu, þó að þess sé ekki kostur hér. Langsennilegast þyk- ir mér, að Bjarni hafi hlýtt á fyrir- lestra Steffens. Fer varla hjá því, að hann hafi nytfært sér þá fræðslu, sem þar var að fá, enda hefir fyrirlestra- starfsemi Steffens þótt heldur en ekki viðburður í Khöfn um þær mundir. Rómantiska stefnan fór um þjóð- irnar eins og vorþeyr og bræddi af þeim klakadróma upplýsingar- og fræðslualdarinnar. Hin nýja stefna tók mið af heiðbláum menningarhá- tindum löngu liðinna alda, sem nú urðu í meðvitund hinna nýju spá- manna að óviðjafnanlegri gullöld. En við þetta vanst það m. a., að þjóðir þær, sem urðu fyrir áhrifum þessarar stefnu, vöknuðu til manndóms og ræktarsemi við menningu sína. Annað eins hefir nú borið við og að slík hugsjónastefna hefði ásamt sollinum í Kaupmannahöfn megnað að sundra sál hins unga íslenska ljóð- skálds. En sveinninn Bjarni var karl- menni. Hann hafði og ekki til einskis alist upp á þeim slóðum, sem höfund- ur Njálu hafði að baksýn þeirra at- burða, sem sú saga lýsir af fádæma snild, og laugað hugann ungur í hinu klassiska heiði íslenskra fornbók- menta. Það er trúlegt, að þekking Bjarna á fornbókmentum vorum hafi varðað leið hans einna best í storm- inum á Hafnarslóð. I þeim fræðum hefði Bjarni vel mátt verða kennari Oehlenschlágers, þeim síðarnefnda til ómetanlegs gagns. En nú fór svo, að bókmentastefna sú, er Oehlen- schláger á að miklu leyti frægð sína að þakka, vakti einnig Bjarna Thor- arensen til meðvitundar um skáld- köllun sína. Við lestur á kvæðum Bjarna Thor- arensens kemur í Ijós, að form hans bendir til tímamóta. Sum kvæðin eru bersýnilega hálfvaxin út úr vöfum upplýsingaraldarinnar. Það vottar fyrir þessu í kvæðinu Eldgamla ísa- fold, þar sem Bjarni hikar ekki við að segja um kristalsárnar „á hverj- ar sólin gljár“. En sum af kvæðum hans eru beinlínis það stirð, að örð- ugt er að lesa þau upphátt. Ég skal t. d. taka upp fyrsta erindið úr kvæð- inu Drykkjuvísa; það er á þessa leið: Biðillinn hleypir hart á stað, hól og grund sem fugl yfir líður, hýbýlum sinnar unnustu að elding skjótar þjótandi ríður. En fyrir slíkan óþarfnað aldrei skal ég hvíld minni raska; því hjó mér kúrir æ í hverjum stað mín hjartans ástarkærasta flaska. Þegar haft er í huga, að Bjarni var góður söngmaður, sem kunni að meta vín og víf, eða eins og Þjóð- verjar orða það: „Wein, Weib und Gesang“, finst oss ekki til um þenn- an kveðskap, og mundum vér lítt sakna hans úr ljóðabók skáldsins. Til samanburðar má nefna hin óviðjafn- anlegu, léttu, lýrisku og fáguðu kvæði

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.