Samtíðin - 01.10.1936, Blaðsíða 14

Samtíðin - 01.10.1936, Blaðsíða 14
12 SAMTÍOIN Maðurinn reyndi að telja konu sinni hughvarf, en það reyndist al- gerlega þýðingarlaust. Slíkt er í sjálfu sér skynsamlegt, en hað er barnalegt að ælla sér að telja kvenfólki hughvarf í þessum efnum. Mér þykir mikið, að hún skyldi ekki rcyna að koma honum á fávitahæli, skaut læknirinn fram í. Ekki komst það nú svo langt. En hún tók að svelta sig og megrast. Ilún dansaði og ferðaðist langar leið- ir á hesthaki. Hún lét valtra sig með keflum, og hún velli sér á glerhörð- um gólfunum. Hún drakk sítrónu- safa og át appelsínur i stað venju- legrar fæðu. Loks tók hún að horast. Og þegar megrunin hyrjaði, miðaði henni vel. Læknirinn kinkaði kolli og mælti: — Rétt er það. Þegar einu sinni er búið að koma ólagi á meltinguna. — — Maðurinn segisl hafa gert alt,_ sem í hans valdi hafi slaðið til þess að fá hana ofan af þessum ódæma asnaskap. Hann bauð henni i dýrleg- ar miðdegisveislur. En hún fékst ekki einu sinni lil þess að borða fyrir 25 aura. Hann be'nti henni á, að hún væri nú ekki algerlega einráð í þessum efnum, þar sem maður og koiia væru cilt. Því næst ásakaði hann hana fyrir það, að liún mundi elska einhvern annan og gera þetta hans vegna. En alt kom fyrir ekki. Viljaþrek konunnar stendur því miður oft i öfugu hlutfalli við skyn- semina, andvarpaði læknirinn. Nú vegur hún 47 kíló og er loks- ins orðin ánægð með sjálfa sig. En maðurinn vill fyrir hvern mun skilja við hana. Hann álítur, að hann hafi verið svikinn og gahhaður. Hann vill fá mig til þess að sanna það, að nú- verandi kona sín sé ekki samá konan, sem hann kvæntist fyrir átla árum. Að vissu leyti hefir maðurinn alveg rétt fyrir sér, en ég efast um, að hægf sé að finna nokkurn lagakrók, er réttlæti málstað hans. Okkur vantar algerlega réttarvenjur í þess hátlar atriðum. Læknirinn lagði frá sér vindiiinn og mælti með alvörusvi]): — Ef þii spyrðir mig, livað Iækna- vísindin segja um þetta þá yrði ég að svara, að þetla sé ekki framar sama konan, sem maðurinn kvæntist, því að eftir átta ár mun tæplega nokkur tætla af mannlegum líkama vcra ó- hreytt frá því, sem áður var. En það var nú annað mál, sem mundi þurfa all of mikilla skýringa við. (Lausl. þýtl). Gyðinffur nokkur frá Transvaal fór lil Durban í þeim erindum, að kaupa þar vörur. ■ Fyrst af ölla keypti hann stóra líkkistu. Síðan keypti hann af heildsölum vörur ýmist með 30, 60 eða 90 daga ffjald- fresti og lcom vörunum haganlega fgrir í líkkistunni. Þegar hann kom að landamærum Transvaals, sagði hann tollþjóninum, að það væri lík í kistunni. — En hvar eru syrgjendurnir? spurði tollþjónninn tortrygginn á svipinn. — Sumir þeirra koma eftir 30 daga, aðrir eftir 60 daga, og nokkr- ir eftir 90 daga, ansaði Gyðingurinn brosandi.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.