Samtíðin - 01.10.1936, Side 16
14
SAMTÍÐIN
gast kapteinn, sem líka er írlending-
ur, og greiðir hann fúslega úr spurn-
ingum tíðindamannsins.
J. C. Prendergast er nú karl í krap-
inu. Hann er tröll að vexti. Hendur
hans eru tröllauknar og eftir hand-
tak hans, sárverkjar þann, sem fyr-
ir því hefir orðið, i miðhandarbein
sin. Ekki er augnaráð hans áhrifa-
minna. Það gefur í skyn, að hann
gæti a. m. k. skimað í gegnum skáp-
hurð i þjóðbankanum í New York
eða hver veit hvað. Eitt er vist, að
Prendergast skipar vel að sæti, sem
honum hefir verið trúað fyrir að
sitja i \un nál. 30 ára skeið.
Frá hcrb. nr. 400 i aðallögreglu-
stöð Chicagoborgar stjórnar Prend-
ergast kapt. sinum ■ 4000 lögreglu-
þjónum, sem skipt er niður á 14 und-
irstöðvar þar i borginni. Allar þess-
ar stöðvar standa á hverju augna-
hliki i simasambandi við aðalstöð-
ina um símastöðina á 12. hæð stöðv-
arinnar. Simnefnið er: Lögregla 13
—13 (á ensku: Police 13—13). Úr
talstöðvarherberginu i lögreglustöð-
inni er stjórnað 200 vopnuðum lög-
reglubílum, sem eru sifelt á ferðinni
um horgina, og fá allar skipanir sín-
ar þráðlaust þaðan.
Það er fróðlegt að sitja inni i tal-
stöð lögreglustöðvariimar, þó að
ekki sé nema i tíu mínútur. Að þessu
sinni vildi nú svo til, að enginn var
myrtur, og enginn hill var kallaður
til þess að heimsækja neitt glæpa-
hreiður. En hins vegar var tilkvnt,
að bófar, með marghleypur á lofti,
væru að ræna, maður nokkur hefði
gert tilraun til sjálfsmorðs, barn
hefði týnst, sjálfsagt af mannavöld-
um, hjón hefðu lent í áflogum, ekið
hefði verið yfir liund, og ótal margt
fleira. Alt var þetta tilkynt lögreglu-
stöðinni, sem jafnskjótt sendi lög-
reglubil á vettvang og hókfærði at-
burðinn, hversu ómerkilegur, sem
hann var í sjálfu sér.
í lögreglustöðinni í Chicago eru 6
dómstólar, þar á meðal dómstóll fyr-
ir æskulýðinn, og er hann því mið-
ur önnum kafinn á hverjum degi-
Einnig er hér fangelsi, sem fyllist
altaf á iiverju laugardagskveldi. A
5. hæð eru herbergi með 600.000
myndum og 700.000 varðveittum
fingraförum af meira eða minna
háttar glæpamönnum. Hér er hver
maður, sem komist hefir í verulegt
kast við lögregluna, látinn skilja eft-
ir fvrnefnt fangamark, en síðan eru
sýnishorn af fingraförum frá öllum
lögreglustöðvum Bandaríkjanna
send til safnsins i Washington, sem
á orðið um 5 miljónir hókfærð
fingraför.
Prendergast segist halda, að heim-
urinn geri fullmikið úr glæpum Chi-
cagoborgar. — Við viljum ekki láta
hengja okkur fyrir meiri syndir en
okkur ber, segir hann. Það er sagt,
að Dillinger hafi verið ósvikinn Chi-
cago-glæpamaður. En þvi er þar til
að svara, að hann var alls ekki upp-
runninn hér og gerði hér aldrei neitt
fyrir sér, enda þótt svo vildi til, að
hann væri slcotinn hér. Erlendis eru
allir hófar Ameriku kendir við Chi-
cago. en menn glevma þvi, að álfa
vor er geysi-víðlend. En þeir, sem
dæma Chicago hart i þessxun efn-
um, verða lika að muna, að borgin
er feikna stór, og að hún er mið-