Samtíðin - 01.10.1936, Page 20
18
SAMTIÐIN
Drenns konar
fólk
Skólastjóri við erlendan lýðhá-
skóla sagði nýlega í skólaslitaræðu:
— Við rekumst á þrenns konar
fólk í lífinu: Þá, sem eru að leita
að verðmætum, þá, sem eru sísof-
andi, og þá, sem alt þykjast vita.
Þeir, sem leita, eru þeir, sem
verðskulda að kallast sannir menn.
Frá þeim stafar sú framtakssemi,
er ræður menningu mannkynsins.
Allar uppfyndingar eru þeirra verk,
allar rannsóknir, öll mannúð staf-
ar frá þeim, og alt umburðarlvndi.
Þeir, sem eg leyfi mér að kalla
sofandi sauði, eru að því leyti i tölu
þeirra manna, sem nokkurs má
vænta af, að hugsanlegt er, að tak-
ast megi að vekja þá. En sú mann-
tegund, sem veruleg hætta stafar
af, eru þeir, sem alt þykjasta vita
og eru uppbelgdir af þessum dæma-
Iausa gorgeir, sem er séreign þeirra
manna, er einhvern tima hafa
gægst inn milli rimlanna á hliðum
þekkingarinnar, og eru alla æfi
siðan haldnir af ofsalegri þörf á þvi
að segja frá þvi, sem þeir sáu. Slík-
ir menn hafa i sér fólginn menn-
ingarlegan blóðþrýsting (sem rétt-
ara væri að nefna loftþrýsting) o«
frá þeim stafar andleg æðakölkun.
Þannig fórust þessum skólastjóra
orð. Vonandi á hann ekki fyrir sér
að sjá meiri hluta nemenda sinna
verða andlegu æðakölkuninni a*
bráð.
R a f I a m p a-
g e r ð i n
Hverfisgötu 4 — Reykjavík
Sími 1926.
Framleiðum allskonar
pergamentskerma, borðlampa,
standlampa og ljósakrónur.
Alt 1. flokks vinna.
KAUPMENN og KAUPFÉLÖG!
Spyrjist fyrir um iðnvörur
okkar. Öllum fyrirspurn-
um svarað um liæl.
4Coí
Ia>lcs
Nægar birgðir
ávalt fyrirliggjandi.
Verð og gæði
hvergi betra.
Kolasalan s.f.
Pósthússtræti 7, Reykjavík.
Símar: 4514 & 1854.