Samtíðin - 01.11.1942, Síða 6

Samtíðin - 01.11.1942, Síða 6
2 SAMTlÐIN Víkingsútgáfan tilkynnir: IILLA eftir 8elmu La^erlöf er væntanleg í íslenzkri þýðingu EINARS GUÐMUNSSONAR þjóðfræðasafnara. Milla er seinasta bók Selmu Lagerlöf. Hún kom út árið 1934, er skáldkonan var 7() ára að aldri. Sænskir ritdómarar luku upp einum munni um, að Milla sann- oði, að ímyndunarafl skáldkonunnar miklu þreyttist ekki né geigaði, þrátt fyrir aldurinn. Milla væri jafn- framt einhver raunsæjasta bók skáldkonunnar, af- burðalýsing á sálarlífi barns. Milla væri bezta unglinga- saga Selmu. Skáldgáfa Selniu gerir Millu, sem flest viðfangsefni önnur, að blæbrigðaríku ævintýri. Þegar skáldkonan var beðin að skrifa rit í áróðursskyni gegn útbreiðslu berldaveiki, varð það til dæmis að taka að draugasögu eða ævintýri (Körkarlen). í Millu lýsir Selma Lagerlöf reynslu sálarinnar, er hún þokast upp úr trégðunni, og unninn er bugur á sál- arkvöl með sjálfsafneitun og fórnum.

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.