Samtíðin - 01.05.1944, Síða 12
8
SAMTlÐIN
MERKIR SAMTÍÐARMENN
Steingrímur Guðmundsson, prentsmiðjustjóri RíkisprentsmiSj-
uniiar Gutenberg, er fæddur í Gufudal í Barðastrandarsýslu
21. maí 1891. Foreldrar: Séra Guðm. Guðmundsson, prestur
þar, síðar ritstjóri á ísafirði, og kona hans, Rebekka Jónsdótt-
ir, alþm. Sigurðssonar á Gautlöndum. — Steingrímur ólst upp
lil fermingaraldurs í Gufudal, en lærði prentiðn á ísafirði á
árunum 1905—10 i prentsmiðju Vestra. Hann vann í prentsm.
Odds Björnssonar á Akureyri 1910—11. en siðan í Gutenberg
í Reykjavík til 1914. Það ár fór hann til Khafnar
Steingrímur og vann i prcntsm. S. L. Mþllers 1914—18, siðan
Guðmundsson Mt THÉS® aftur- i Gutenberg 1918—19, en þvi næst hjá
s Gyldendal í Khofn til 1929. Muttist hann þa
heim og gerðist i ársbyrjun 1930 prentsmiðju-
stjóri í Gutenberg, er ríkið tók við rekstri henn-
ar. Hefur hann síðan helgað jiessu fyrirtæki
óskipta starfskrafta sína, en að sjálfsögðu einnig
sinnt margs konar störfum í sambandi við rekst-
ur þess. — Steingrímur er gáfumaður, svo sem
hann á kyn til, fjölmenntaður og viðsýnn. Hann
er starfsmaður mikill og vævi þá vel, ef slíkur
afbragðsmaður væri í hverju opinberu slarfi í
þessu þjóðfélagi. Hann samein-
M. Oberon
John Masefield,
brezka lárvið-
arskáldið, er
fæddur í Led-
bury 1. júní
1878, og var
faðir hans
málaflutnings-
maður. Eftir
venjulega
skólamenntun
i Warwick fór
John Masefield í siglingar, en
hvarf siðan frá því starfi og
fór til Bandaríkjanna. Mase-
field er allt í senn, Ijóðskáld,
sagnaskáld og leikritaskáld.
Hann var kjörinn lárviðarskáld
9. mai 1930. Arið 1933 flutli
hann fvrirlestra í Bandarikjun-
um. Síðan i stríðsbyrjun hefur
hann ritað mikið, m. a. athygli-
verða bók um undanhald Breta
frá Dunkirk í maí 1940.
O’Neill
Eugene O’NeilI, hinn heimsfrægi, ameriski leik-
ritahöfundur, er fæddur árið 1888. Hann var á
árunum 190(5—07 nemandi við Princeton-háskól-
ann og 1914—15 við Harvard-háskóla. O’Neill
hefur lagt margt á gjörva hönd. Hann hefur
m.a. verið sjómaður, leikari, blaðamaður o. fl.
Síðan 1920 hefur hann verið talinn fremsta leik-
ritaskáld Bandaríkjanna. Ilann hefur skrifað
geysimörg leikrit, m. a. „Thirst“ (1914), „Bound
east for Cardiff" (1910), „The moon of the Car-
ibbies“ (1918), „Beyond the horizon" (1920),
„Anna Christie“ (1921) o. m. fl. 1 fyrstu verlcum O’Neills þótti
kenna áhrifa frá Nietzsche, Wedekind, Strindberg, Kipling, Jack
London og Josepli Conrad, en nú eru þær raddir, er svo mællu,
þagnaðar. O’Neill fékk bókmenntaverðlaun Nóbels árið 1936.
ar þá eiginleika að vera rétt-
sýnn, einarður og frjálslyndur
í senn. Hann kvæntist 1919
Eggrúnu Arnórsdóttur (síðast
prests i Hvammi í Laxárdal í
Skagafirði, Árnasonar), hinni
ágætustu konu.
Merle Oberon kvikmyndaleik-
kona heitir réttu nafni Queenie
Thompson. Hún er fædd i Tas-
maniu i Ástr-
alíu árið 1911.
Ilún er fögur
kona, dökk á
brún og brá.
Gerði samning
1932 við Lon-
don Film Pro-
ductions til 5
ára og hefur
síðan leikið
mjög mikið.
Masefield
Richard Tauber, hinn heimsfrægi söngvari, er fæddur í Linz,
i þáverandi Austurriki, og er nú fimmtugur að aldri. Tauber
stundaði tónlistarnám í Frankfurt am Main og hugðist fyrst að
verða hljómlistarstjóri, en lagði þvi næst stund á söng! Hann
hefur sungið opinberlega í flestum meiri háttar söngleikahúsum
í Evrópu við mikinn orðstír. Hann hefur mjög fagra tenórrödd.
Tauber