Samtíðin - 01.05.1944, Side 24
20
SAMTÍÐIN
izt í vitleysu. Setningin „Sporin
hræða“ — er uni nazista og þann-
ig skýrð í greininni: „Þeir hafa geng-
ið manna hezt fram í því að leggja
í rústir fornfrægar byggingar banda-
manna, allt frá sveitakirkjum Nor-
egs til dómkirkjunnar í Coventry,
Guildhall í London og ótalmargi-a
annarra bygginga.“
Orðasambandið allt frá .... til,
á aldrei að vera nema tvíliðað: allt
frá jöklum til strandar t. d. Sé ann-
ar liðurinn samsettur eða báðir,
verða nátengdir eða samstæðir hlut-
ir að vera í hvorum liðnum um sig,
en ekki hroðvirknislega raðað sam-
safn „ótalmargra annarra bygginga,“
eins og þarna stóð, bygginga í ýms-
um löndum heims.
Það tíðkast nú um stundir að rita
um píslarvotta grimmdar, blóðtrú-
ar og fasisma, píslarvotta hinna illu
afla. Þetta kemur illa við óspillta
menn, sem vita bæði, hvað orðin
merkja, og hitt, hvað gerist. En taki
ég orðin bókstaflega og megi ég
„skemmta með hinum óskemmti-
legasta hlut“ eins og meistari Jón
kvað, sýnist mér, að píslarvottar
blóðþorstans séu blóðtrúarmennirn-
ir sjálfir, en eigi fóinarlömb þeirra,
og „píslarvottar illra afla“ séu pisl-
arvottar djöfulsins og trúarinnar á
hann. — Fyrr voru uppi píslarvottar
helgrar trúar, það voru þeir, sem
vottuðu trú sina með því að standast
píslir. Þeir hétu píslarvottar Krists.
Enginn getur talizt pislarvottur,
nema hann eigi trú og málstað og
votti i þjáningunum um gildi þess.
Hálsbindagerðin
Jakobína Ásmundsdóttir
Suðurgötu 13, Reykjavík.
Sími 2759.
Býr til alls konar
hálsbindi, trefla og slæður.
Selur kaupmönnum og kaupfélög-
um um land allt.
Fyrsta flokks efni og vinna.
acQ/Þetta
V merki
. V JjtW tryggir
\ÆW yður
gæðin.
LITLA BLIKKSMIÐJAN
Nýlendugötu 15, Reykjavík
smíðar meðal annars:
Þakrennur,
allar stærðir og gerðir
Þakglugga,
allar stærðir og gerðir
Olíukassa i báta og skip
Benzingeyma i bila og báta
Loftrör, allar stærðir
Lofttúður o. fl.
Fljót afgreiðsla.
Lágt verð.
LITLA BLIKKSMIÐJAN
Nýlendugötu 15, Reykjavík