Samtíðin - 01.05.1946, Blaðsíða 8

Samtíðin - 01.05.1946, Blaðsíða 8
4 SAMTIÐIN heimtum hið langþráða frelsi, og friðar- vorið 1945, þegar fregnirnar um styrj- aldarlok í Evrópu bárust hingað. Guð gefi, að sérhvert ókomið vor megi laða fram nýjar, ósviknar vonir og aukinn þrótt í hverri einustu íslenzkri sál og að það megni að gera iill landsins börn að skárri íslendingum en við erum. Fátt van- hagar okkur meira um en einhuga þjóð, sem metur frelsi og farsæld lands síns meira en óþjóðlega sundrung. Ef íslenzka þjóðin finnur sjálfa sig í réttri merkingu þeirra orða, mun verða bjart yfir vori hins íslenzka lýðveldis. REYNIÐ m SVARA eftirfarandi spurningum, en svör- in eru ú bls. 29. 1. Hver orti þetta: Yort lánd er í dögun af annarri öld. Nú rís elding þess tíma, sem fáliðann virðir.(?) 2. Ilvað þýðir: kárína? 3. Ilver var Hieronymus Cardanus? 4. Hvað Iiét liamar Ása-Þórs? 5. Ilvar er Boniflói? JJAKAKROSSINN (swastika er elzta tákn, sem menn þekkja. I sanskrít merkir hann: „allt í lagi“. (Or „World Philosophy"). Er gegnum rökkur geisli skín, þá gleðst vor sál. Hans dásemd breytir daufri glóð í dýrlegt bál. Hann faðmar eins hinn fagra hlyn sem fúið brot, og blessar kotungs kynni jafnt sem konungsslot. liann leikur jafnt við lind og fljót sem lyng og björk, við gráan sand og grettan mel sem gróna mörk. Hann saklaust barnið signir eins og' sekan mann, og vesalinginn vermir jafnt og valdhafann. Hann gulli slær á grænan lund og grátna brá, og jafnmjúkt kyssir heita liönd sem hélað strá. An geislans væri verö'ld öll sem váleg gröf, og vegferð mannsins vondauf leit um voðans höf. Jórunn Ólafsdóttir, Sörlastöðum. ^i^urýeir ^icfurjóníáon, Beztu kaupin gera allir í verzlun hæstaréttarmálaflutningsmaður. Aðalstræti 8 — Sími 1043 Skrifstofutími 10-12 og 1-6 Guðjéns Jónssonar á Hverfisgötu 50. Sími 3414.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.