Samtíðin - 01.05.1946, Blaðsíða 35

Samtíðin - 01.05.1946, Blaðsíða 35
SAMTlÐIN 31 !>eir VITRU — .... ...... SÖGÐU: TÓMAS SÆMUNDSSON: „Vel 8'etur því ekki reitt af, ef menn leiða allt hjá sér, sem ónæði og áreynslu kostar, því að lífinu er samfara stríð og erfiði; án þess er það afbreytinga- laust og sælulítið. Alla framför verður að kaupa með fyrirhöfn, því að hún reynir á manninn og eflir með því þrótt hans, veitir honum það, sem hann keppist eftir, og gleð- ur hann, þegar hann hefir öðlazt það. Eða hvernig fer, þegar ekkert er að hafzt, þegar ntenn undir eins frarnan af ævinni vita ekki, hvað þeir ætla sér, þegar mók eða værð kentst á sálina og því er slegið á frest til ntorguns, sent vinna átti í dag, til næsta ársins, sent þetta árið ntátti af koma. Fer þá ekki oft svo, að dagurinn er liðinn fyrr en tekið er eftir eða að minnsta kosti sá kafli hans, þá hægast var að vinna, en verkið er óunnið, sem gjöra átti, svo að það verður aldrei gjört?“ PÁLL J. ÁRDAL: „Að hryggjast og gleðjast hér um fáa daga, / að heilsast og kveðjast. — Það er lífsins saga.“ EINAR ÓL. SVEINSSON: „Til þess að breiða út kenningar þarf að skilja þá, sem við þeim eiga að taka.“ BENEDIKT GRÖNDAL: „Þeir níða mest, sent ekkert gjöra sjálfir.“ BEN. Þ. GRÖNDAL: „Ef þú, ntaður, ekki sífellt iðja nennir, / á lastasoði letinnar þú líf þitt brennir.“ NYJAR BÆKUR Guðmundur Kamban: Vítt sé ég land og fagurt. Skáldsaga. SkáldiS tekur hér til meðferírar ástir þeirra Bjarnar BreiSvík- ingakappa og ÞuríSar á FróSá. I. bindi. 302 bls. ób. kr. 50.00, ib. kr. 100.00. Guðm. G. Hagalín: Ivonungurinn á Kálf- skinni. Nútíðarskáldsaga. Gerist á elli- heimili. Teikningar eftir Halldór Pét- ursson. 519 bls. ób. kr. 48.00, ib. kr. 62.00 og 78.00. Knut Hamsun: Viktoría. Ástarsaga. 2. útg. Þessi vinsæla saga urn hinn draumlynda malarason er nú aftur komin í skraut- legri útgáfu. Jón SigurSsson frá Kald- aSarnesi þýddi. 163 bls. ób. kr. 28.00. íb. kr. 48.00. Jónas Hallgrímsson: LjóSmæli. Skraut- útgáfa i tilefni af aldarafmæli skáldsins. Tómas GuSmundsson sá um útgáfuna og ritaði inngang aS kvæSunum. MeS mynd- um eftir Jón Engilberts, íb. kr. 165.00 og 310.00. Jón Trausti: Anna frá Stóruborg. Skáld- saga. Þetta er skrautútgáfa af hinni vin- sælu ástarsögu um liöfSingskonuna Önnu á Stóruborg, prýdd teikningum eftir Jóhann Briem. 188 bls., ób. kr. 38.00, íb. kr. 75.00 og 125.00. Jón Trausti: Ritsafn, 6. bindi (Bessi gamli, Smásögur 1—2 og FerSaminning- ar) 443 bls. ób. kr. 55.00, ib. kr. 75.00 og 125.00. Jón Magnússon: Bláskógar. LjóSasafn I —IV. Hér eru samankomin öll verk þessa vinsæla skálds: Bláskógar, HjarS- ir, FlúSir, JörSin græn og Björn á Reyð- arfelli. 736 bls. ób. kr. 80.00, íb. kr. 120.00 og 160.00. Útvegum allar fáanlegar íslenzkar bæk- ur. Fjölbreytt úrval erlendra bóka. Send- um gegn póstkröfu um land allt. EólaLÚ WáL oy Laugavegi 19, Reykjavík. Sími 5055. Pósthólf 392. mevminffar

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.