Samtíðin - 01.04.1947, Page 13
SAMTÍÐIN
9
er hægt að losa sig fyllilega við arfa
úr nýrækt, ef hann er úðaður nógu
snemma, og eins er hægt að eyða
honum úr öðrum ræktarlöndum með
vissri varúð. Sóleyjar hverfa fvlli-
lega úr túnum, ef þau eru úðuð með
efnunum, þegar gras er í vexti, en
vegna grassins er þó heppilegt að
bera ammóníumsúlfat á túnið viku
áður en úðunin er framkvæmd.
Fíflar og skarifíflar þ'ola efnin illa,
og sama er að segja um gleymérei,
njóla, þistla, hjartarfa og allmargar
jurtir aðrar.
Það er oft verið að telja eftir það
litla fé, sem veitt er til hagnýtra og
fræðilegra náttúrurannsókna á þessu
landi, og í hvert skipti sem sérfræð-
ingar leggja fram áætlanir sínar, eru
ósérfróðir stjórnmálamenn reiðu-
búnir að skera þær niður að ein-
hverju eða öllu leyti. Á sviði land-
búnaðarins ganga nú að minnsta
kosti þrír ómetanlegir sérfræðingar
atvinnulausir, vegna þess að ríkið
„hefur ekki ráð á“ að greiða þeim
laun og veita þeim síarfsaðstæður.
En öll vísindastarfsemi á sviði jarð-
ræktar getur borið sig álíka vel og
eyðing illgresisins, cf klastrarar eru
ekki látnir fást við hana sem ^uka-
starf frá öðru. Ef illgresinu íslenzka
er eytt á grundvelli sérþekkingar vís-
indanna, ættu skilningarvit aurasáln-
anna að geta sagt þjóðinni, að það
horgar sig að leggja hluta úr millj-
ón í starf, sem gcfur aukalega í ár-
legan arð að minnsta lcosti 5—10
milljónir króna.
lltvegið Samtíðinni áskrifendur
meðal kunningja yðar.
jy|AURAPCKI einn andaðist nýlega.
Hann knúði hurðir hjá Sánkti
Pétri.
„Hver ert þú?“ spurði Sánkti Pét-
ur.
Maðurinn nefndi nafn sitt.
„Hvað er þér á höndum?“ spurði
Pétur.
„Ég vil komast inn til ykkar,“ anz-
aði maðurinn.
„Hvað hefur þú gert, sem réttlæti
þá ósk?“ spurði Pétur.
„Fyrir síðustu jól sendi ég fátækri
ekkju tíu krónur í jólagjöf“.
„Gabríel, er það á spjaldinu hans
í spjaldskrárkassanum?“ spurði Pét-
ur.
„Já, Sánkti Pétur, það er fært hon-
um þar til tekna“ anzaði Gabríel.
„Og hváð hefurðu gert fleira?“
spurði Pétur.
„Fleira, ja bíðum við. Jú, ég gaf
einu sinni fátækum blaðsöludreng,
sem var alveg að krókna, túkall“.
„Gabríel, er það líka á spjaldinu
hans?“
„Já, Sánkti Pétur“.
„Og fleira?“
„Ekki svo . ég muni“. .
„Hvað heldurðu, að við ættum að
gera við þennan náunga, Gabríel?"
„Endurgreiða honum þessar tólf
krónur og senda hann rakleitt til
vítis“.
Allar fáanlegar
SPORTVÖRUR
á einum stað.
Austurstræti 4 . Sími 6538