Samtíðin - 01.04.1947, Blaðsíða 30
26
SAMTÍÐIN
hákur hinn mesti, er því var að
skipta og var þá stundum laus hönd-
in, því geðið var afarmikið. —----
öllum samtíðarmönnum Skúla ber
saman um, að hann hafi verið manna
iðjusamastur og hamhleypa hin
mesta, og jafnvel fjandmenn hans
láta hann njóta sannmæhs i því efni.
„Hann var erfiðissamur i mesta lagi,
svo hann gat varla iðjulaus verið“,
segir Magnús sýslumaður Ketilsson
um hann. Þarf varla að taka þetta
fram, því líf hans allt ber það með
sér, að elja hans og starfsþrek hef-
ur hlotið að vera framúrskarandi, og
munu fáir Islendingar hafa jafnazt
á við hann í þeim efnum, að undan-
skildum þeim nöfnum Jóni Eiríks-
syni og Jóni Sigurðssyni.---------
Skúli var maður bæði handhagur
og sjónhagur og sagði sjálfur fyrir
verkum um byggingar ahar og mann-
virki, er hann var við riðinn, enda
hafði hann og hina mestu unun af
því. Htsjónar- og framkvæmdasam-
ur þótti hann og i búnaði og verk-
stjórn, og kom það ljósast fram, er
hann bjó á ökrum og var umsjónar-
maður Hólastóls.--------Skúli var
maður hugprúður mjög og kunni
eigi að hræðast. Kom það þráfald-
lega fram, en aldrei ljósar en tvisvar
í utanferðum hans. Hreppti hann
hafvillur og storma og átti með snar-
ræði sínu og kjarki mestan og bezt-
an þát't í að bjarga bæði skipi og
mönnum. Hefur Grímur skáld Thom-
sen kveðið um það, eitt af kvæðum
sínum, er flestum Islendingum mun
kunnugt“. (Skúli Magnússon landfó-
geti'eftir Jón Jónsson (Aðils), Rv.
1911, bls. 306—320 passim).
er viðurkennda
«■■ «4*1 ■*
smjorlikio.
Framkvæmum:
Bílaviðgerðir,
Bílasmurningu,
Bílasprautun.
Seljum:
Bílavarahluti,
Bílaolíur,
Loftþrýstiáhöld
o. fl.