Samtíðin - 01.04.1947, Blaðsíða 35
SAMTÍÐIN
31
ÞEIR VITRI)
SÖGÐU:
SIG. GUÐMUNDSSON: Mannúð
virðir svo, að maðurinn, einstakling-
urinn, hvert barn, „sem ljósið lítur“,
þroski þess og velfarnaður, sé hinzta
markmið allrar mannlegrar viðleitni
og allra menningarstofnana og þá
einkum ríkisins sjálfs. Ríkið er stein-
dautt sem penninn eða blekið, er
embættismenn þess rita fyrirskipan-
ir sínar og úrskurði með. Ríkið finn-
ur ekki til, kennir hvorki sælu né
kvala, nýtur hvorki lista né lita
góðra. Ríkið uppgötvar ekki, skapar
ekki. Maðurinn, hver einstaklingur,
finnur til, vonar og kvíðir, kennir
þæginda og sárinda, fagnar „sólar-
sýn“. Einstaklingurinn uppgötvar,
skapar, yrkir, samstillir og samræm-
ir.---Ég skil vel, að athugulir
menn og þroskaðir séu stundum van-
trúaðir á blessun lýðræðisins. Ég hef
sjálfur þótzt og þykist enn sjá á því
ýmsa alvarlega agnúa. En mér virð-
ist það samt skásta, langsam-
iega skásta stjórnskipulagið,
sem fundið hefur yerið meðal sið-
menntaðra þjóða. Það er enn ungt
°g er enn haldið mörgum barnasjúk-
dómum. Það ætti að mega lækna
marga þeirra eða bæta ýmsar mein-
semdir þess. Það verður og að muna,
að lýðfrelsi er ekki sama
sem agaleysi né alfrelsi.
Það er og næsta margt, sem meiri
hluti atkvæða getur ekki kveðið upp
úrskurð um né ráðið fram úr. Það
er lífsnauðsyn lýðræðisins, að það
■viti hér takmörk sín.“
NÝJAR BÆKUR
Gerard Boots: Kennslubók í frönsku, 189
bls., íb. kr. 25.00.
Jón J. Aðils: íslandssaga handa gagn-
fræða- og unglingaskólum. 3. útg. end-
urskoðuð, með myndum. Vilhj. Þ.
Gíslason sá úm útgáfuna, 408 bls., íb. kr.
30.00.
Jeppabókin. Leiðbeiningar um bílavið-
gerðir og viðhald. Með myndum, 145 bls.
ib. kr. 60.00.
Viðskiptaskráin: Atvinnu- og kaupsýslu-
skrá íslands 1946, 9.árg., 1071 bls., ib.
kr. 30.00.
Stefán Stefánsson: Plönturnar. Kennslu-
bók í. grasafræði með 269 myndum IV.
útg. lagfærð og aukin, 199 bls., íb. kr.
26.00.
Erich Maria Remarque: Sigurboginn.
Skáldsaga eftir hinn fræga höfund bók-
arinnar „Tiðindalaust á vesturvígstöðv-
unum“. Maja Baldvins islenzkaði, 463
bls., ób. kr. 55.00, íb. kr. 71.00 og 90.00.
W. Somerset Maugham: Svona var það
og er það enn. Skáldsaga. Brynjólfur
Sveinsson islenzkaði, 281 bls., ób. kr.
25.00, íb. kr. 35..00.
W. Somei-set Maugham: Suðrænar synd-
ir. Úrvals^ögur. Halldór ólafsson is-
lenzkaði, 259 bls., ób. kr. 22.00, íb. kr.
30.00.
Robert Graves: Ég, Claudius. Spilltar
konur, spilltir menn. Skáldsaga. Magn-
ús Magnússon islenzkaði, 391 bls., ib.
kr. 65.00.
A. J. Cronin: Dóttir jarðar. Skáldsaga.
Jón Helgason íslenzkaði, 116 bls., ób.
kr. 15.00, ib. kr. 24.00.
Útvegum aliar fáanlegar islenzkar bæk-
ur. Fjölbreytt úrval erlendra bóka. Send-
um gegn póstkröfu um land allt.
t$ól?abú& m ocf
Laugavegi 19, Reykjavík.
Sími 5055. Pósthólf 392.
m-ennMCjar