Samtíðin - 01.11.1953, Qupperneq 9

Samtíðin - 01.11.1953, Qupperneq 9
SAMTÍÐIN 5 Kvennaþættir „Samtíðarinnar" RITSTJ □ Rl: FREYJA KVENLEGFEGURÐ Rósa skrifar: Mér tekst ekki nærri alltaf nógu vel að mála á mér var- irnar. Ég öfunda þær konur, sem alltaf eru með vel málaðar varir og brenn í skinninu af að vita, hvernig þær fara að þvi að gera það svona dásamlega vel. Geturðu gefið mér góð ráð? Svar: Það er bezt að nota fyrst mjóan varalit, sem er eins og blý- antur í laginu og ekki mjög feitur. Síðan er gott að nota litinn, þar til gerðan pensil til að dreifa litnum um varirnar, en forðast skal. að hann fari út fyrir „amorsbogann". I nýj- ustu frönskum tízkublöðum er auk þess minnzt á blómasafa (eau de fleur d’oranger), sem þau ráða ein- dregið til, að notaður sé til að hreinsa burt varalit, sem fer út fyrir varirn- ar, ])egar verið er að mála þær. Gættu þess að þrýsta ávallt pappírsserviettu að vörunum, strax og búið er mála þær, til þess að liturinn verði sem jafnastur og hvergi of þykkur. Ný- kominn er á markaðinn bér glær lögur (lip-cote) til að bera á varirn ar, eftir að búið er að mála þæiv Með því móti helzt liturinn á þeim allan daginn og sezt livorki á barmana á kaffibollunum né skilur eftir för a mjög óheppilegum stöðum, þar sem þau mega alls ekki sjást! Áhuga- og vandamálin Ekki skortir vandamálin hjá okk- ur konunum eins og þetta bréf sýnir, sem ég fékk um daginn frá „sorg- mæddri húsfreyju". Hún skrifar: Kæra Freyja: Ó, ég á svo bágt, get urðu ekki hjálpað mér. Ég er búir að vera gift í 7 ára og á ágætan mann. Við erum barnlaus. Við erum bamingjusöm, og ég er alveg viss um, að maðurinn minn heldur ekki fram bjá mér. En í seinni tíð er hann far- inn að láta mig svo afskiptalausa. Hann rétt kastar á mig kveðju, þegar bann kemur heim úr vinnunni og er þá allur í útvarpinu eða blöðunum, ef hann þarf ekki að fara út aftur. Þú veizt ekki, bvað ég sakna gömlu umhyggjuseminnar hans og hlýjunn- ar. Hvað á ég að gera ? Svar: Ég held, að það sé oft okkur konunum sjálfum að kenna, ef karl- mennirnir fara að verða eitthvað af- skiptalausir gagnvart okkur. Þeir koma heim og vita, að við bíðum alltaf eftir þeim. Þetta getur leilt til þess, að þeir fari að álíta sjálfa sig eins konar möndul í tilverunni, sem allt eigi að snúast um. Heldurðu ekki, að þinn hefði bara gott af, að þú gerðir hann pínu lítið afbrýðissam- an? Hver veit, nema hann áttaði sig á því, að þú ert ekki bara dauður hlutur á heimilinu, eins og t.d. hús- gögnin. Reyndu. Swnehhurinn visar teiðiwta til ohhar. Kápubúðin, Laugavegi 35. Sími 4278. Nýjasta tízka ávallt fyrirliggj- andi — Sent gegn póstkröfu um allt land.

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.