Samtíðin - 01.11.1953, Page 10
6
SAMTÍÐIN
EFTIR DIJK OG DISK
SAGT ER, að maður komi eftir
dúk og disk, ef hann kemur, þegar
einhverju er lokið, eitthvað er um
garð gengið. Eftir dúk og disk má þó
no ta með miklu fleiri sögnum en
koma. Mér hefir dottið í hug, að
þetta orðasamband sé fengið úr ein-
hverju öðru tungumáli, en enga beina
samsvörun hefi ég fundið, enn sem
komið er. En þótt forsetningarliður-
inn eftir dúk og disk sé, ef til vill,
ekki beinlínis tökuorðasamband, er
hann áreiðanlega að nokkru leyti af
erlendum toga spunninn.
Að koma eftir dúk og' disk tíðkaðist
í íslenzku þegar á 17. öld:
En komu ekki sjálfir fyr en eftir
dúk og disk. J. M. Písl. 115.
Píslarsaga Jóns Magnússonar er þo
ekki eina heimildin frá þessum tim i
um orðtakið. Það kemur einnig fyrir
i málsháttasafni Guðmundar Ölafs-
sonar (G. O. Thes. 174). Orðtakið er
einnig kunnugt frá 18. öld. I orða-
safni, sem Hannes biskup Finnsson
hefir tekið saman, segir svo:
Þú komst epter dúk og disk, post
festum venisti. H. F. Lbs. 99 fol.,
hls. 464.
Frá 18. öld er einnig kunnugt orða-
sambandið að halda dúk og disk úr
orðasafni, sem Jón Árnason hiskup
er höfundur að:
Dwk og Disk að hallda, ad mensam
accumhere, degere. J. Á. Lhs. 224,4to,
hls. 227.
Þetta orðasamhand er tekið úr
dönsku holde dug1 og disk, sem merk-
ir „reka (sjálfur) heimili“. 1 sænsku
kemur fyrir disk och duk í nokkrum
orðasamhöndum, sem lúta að mat-
borði og regluliundnum máltíðum á
heimilum.
Orðið diskur er gamalt tökuorð úr
latínu í germönskum málum. Latn-
eska orðið, sem til grundvallar ligg-
ur, er discus. Það merkir „skífa“.
Þetta latneska 'orð hefir í sumum ger-
mönskum málum fengið merkinguna
„horð“ (t. d. þ. Tisch), og sú merk-
ing er á ferðinni í þeim orðasam-
höndum, sem hér um ræðir. Dúkur og
diskur merkir þannig i rauninni
„dúklagt borð“. I orðasambandinu
að halda dúk og disk er dúkur og
diskur (þ. e. dúklagt borð) táku
matborðs heimilisins. Það er því of-
ur skiljanlegt, að það fær merking-
una „að halda heimili“.
Nú ættu menn ekki að velkjast
lengur í vafa um það, hvernig orð-
takið að koma eftir dúk og disk er
hugsað. Það merkir greinilega í
fyrstu „að koma að lokinni máltið“
eða koma „post festum“ (að hátíð
lokinni), eins og Hannes Finnsson
orðar það.
Eins og áður er tekið fram, hefi
ég ekki fundið beinar fyrirmyndir
orðtaksins í öðrum tungumálum. Vel
má hugsa sér, að orðasambandið
dúkur og diskur hafi fyrst borizt
hingað í öðrum samböndum, t. d.
halda dúk og disk, þótt heimildir um