Samtíðin - 01.12.1953, Blaðsíða 9
ÁSKRIFTARTÍMARIT UM ISLEINZK OG ERLEND MENNINGARMÁL
10. hefti 20. árg.
Nr. 198
Desember 1953
SAMTIÐIN kemur 10 sinnum á ári, mánaðarlega nema i janúar og ágúst, samtals 320
bls. Árgjaldið er 35 kr. burðargjaldsfritt (erlendis 45 kr.), og greiðist það fyrirfram.
Áskrift getur byrjað hvenær sem er og miðast við siðustu áramót. úrsögn sé skrifleg
og verður að hafa borizt fyrir áramót. Ritstjóri: Sigurður Skúlason, sími 2526, póst-
hólf 75. Áskriftargjöldum er veitt móttaka i verzluninni Bækur og ritföng hf., Aust-
urstræti 1 og í bókabúðinni á Laugavegi 39. — Prentuð i Félagsprentsmiðjunni h.f.
FLUGIÐ ER FRAMTÍÐIN
TWA er eitt af fjórum stærstu flugfélög-
urn Ameríku. í þjónustu þess eru
nú samtals 14 500 menn, dreifðir um heim
allan. Stjórnarformaður þessa mikla fyr-
irtækis, ffarren Lee Pierson, var
nýlega á skyndiferð í Evrópu. Hann er
sænskur að ætt, og fluttust foreldrar hans
vestur um haf á áttunda tug seinustu ald-
ar, rétt um það bil, sem vesturfarir héðan
af íslandi voru að hefjast. Eins og ýmsir
aðrir Bandaríkjamenn, kynjaðir af Norð-
urlöndum, hefur Pierson reynzt mjög dug-
andi maður vestan hafs. Hann er lögfræð-
ingur að menntun og talinn einn af snjöll-
ustu sérfræðingum Bandaríkjamanna á
sviði alþjóðaréttar og fjármálastarfsemi.
Við komu sína til Evrópu á dögunum
komst hann að orði eitthvað á þessa leið
um framtíð flugmálanna: Frá því að hafa
í rauninni verið tómstundagaman (hobby)
leiðandi manna eru flugmálin nú komin á
það stig, að hægt er að viðurkenna þau
sem arðberandi atvinnugrein og hana allt
annað en veigalitla. Innar fimm ára mun
flugfélögunum takast að verða óháð ríkis-
stjórnunum. Auk þess má telja sennilegt,
að flugfélögin vestan hafs a. m. k. muni
takast á hendur einkarétt þann á farþega-
flutningum á langleiðum, sem járnbraut-
irnar hafa hingað til haft. Þungavöruflutn-
ingar munu hins vegar naumast nokkurn
tíma fara fram loftleijðis. Þess er heldur
«
ekki að vænta, að núverandi verð á far-
gjöldum með flugvélum eigi fyrir sér að
lækka verulega, fyrr en framleiddar verða
allt aðrar flugvélagerðir en þær, sem við
þekkjum í dag. Eins og sakir standa, er
öllum þeim tekjuafgangi, sem um kann
að vera að ræða hjá félögunum, varið til
kaupa á nýjum vélum, sem kosta of fjár.
Hvað TWA snertir, þá höfum við ekki hug
á að breyta loftflota okkar í þrýstilofts-
flugvélar, vegna þess hve óhóflega dýrt
það mundi verða. Hins vegar munum við
auðvitað fylgjast nákvæmlega með þróun-
inni á því sviði, og eins og sakir standa
eigum við í pöntun nýjar vélar af hinni
svokölluðu super-constellation
gerð, sem eru með sameinuðum túrbínu- og
skrúfuhreyflum. Þessi hreyfilgerð er at-
hyglivert þróunarspor í áttina til þrýsti-
loftshreyflanna, miklu hagkvæmari en þeir
og þannig byggð, að unnt er að nota hana
á flugleiðum yfir Atlantshafið.
En það, sem mest ber að fagna í sambandi
við þróun þessara mála upp á síðkastið, er
lítið öryggisáhald, sem verið er að reyna í
vélum okkar um þessar mundir. Þetta
undraáhald segir til um allt, sem aflaga
kann að fara í sambandi við hreyflana á
fluginu, svo að flugmennirnir sjá undir
eins, hvað að er og af hverju bilun stafar.
Þar með vita þeir einnig, hvort þörf er
á að lenda á næsta flugvelli eða óhætt er