Samtíðin - 01.12.1953, Side 22
16
SAMTÍÐIN
IÐNAÐARMANNAGARÐURINN í
Khöfn er á fögrum og kyrrlátum stað
við Rispebjerg Parkallé (nr. 22) 1
norðvesturhluta borgarinnar. For-
stöðunefnd garðsins hefur verið mjög
heppin i vali garðprófasts. Því starfi
gegnir cand. mag. Rikard Hornby,
yfirkennari við einn af iðnskólum
Hafnar, einn af lærðustu nafnasér-
fræðingum Dana, en auk þess þaul-
vanur að umgangast ungt fólk og
mannkostamaður mikill. — Ég hitti
Hornhy fyrst, er ég dvaldist í Khöfn
vorið 1947 til að kynna mér tungu-
málakennslu í iðnskólum borgarinn-
ar. Er ég var á ferð í Khöfn í fyrra,
bauð hann mér að skoða Iðnaðar-
mannagarðinn og vera jafnframt
gestur garðbúa á miðsumarhátíð
þeirra.
Hátíð þessi fór hið bezta fram.
Skiptust þar á stuttar ræður, kvik-
myndasýningar og vísnasöngur, og
lögðu grænlenzkir garðbúar til drjúg-
an skerf af því síðastnefnda. Þótti
mér nýstárlegt að heyra sungin græn-
lenzk ljóð og lög. Bornar voru fram
rausnarlegar veitingar, og að lokn-
um fyrrnefndum skemmtiatriðum
var stiginn dans. ÖIl var skemmtun
jiessi með miklum menningarbrag
og garðbúum til sóma. Það vakti
athygli, að er gleðskapurinn stóð sem
hæst, bjuggust nokkrir af garðbúum
til brottfarar. Var þeim árnað farar-
heilla alla leið suður til Italíu, en
]>angað var ferð þeirra heitið til að
kynnast ýmsu því, er að gagni mætti
koma síðar á lífsleiðinni. Eru þess
háttar námsfarir alsiða erlendis.
Aður en hátiðinni var lokið, sýndi
Rikard Hornby mér Iðnaðarmanna-
garðinn hátt og lágt. Húsið er 4 hæðir
auk kjallara. I kjallaranum er m. a.
eldhús, stór borðsalur og setustofa,
en á hverri hæð búa 22 nemendur í
einbýlisherbergjum og hafa til afnota
tvö te-eldhús, 11 manna „fjölskylda“
hvort. I rishæð hússins er, eins og
áður var getið, rúm fyrir 35 iðnaðar-
menn í 6 manna herbergjum. .Eru
þau ætluð þeim mönnum, er taka
þátt í mánaðarnámskeiðum á Tekno-
logisk Institut og viðar. Þar gela
einnig húið iðnskólakennarar, er
koma til Khafnar til þess t. d. að
sækja teiknikennaranámskeið.
Ég bað Hornhy garðprófast að lýsa
í fám orðum daglegu lífi þarna á
garðinum, og fórust honum þannig
orð:
„Hér í háborg iðnaðaræskunnar er
allajafna risið snemma úr rekkju á
morgnana, enda þótt oft sé seint
slökkt á leslömpunum á kvöldin. —
Bjölluhljómur kveður samtímis við
í öllum herbergjum, þegar mál er að
vakna, og síðan hraða garðbúar sér
til steypubaðanna í herbergjunum
yzt á göngunum. Því næst klæða
menn sig í skyndi, búa um rúm sín
og laga til í herbergjunum. Að því
loknu safnast 11 manna „fjölskyld-
urnar“ saman í te-eldhúsunum og fá
sér morgunhressingu. Því næst snar-
ast garðbúar niður i kjallarann, taka
hjól sín og hjóla áleiðis til skólans.
Skiptast menn milli ýmissa iðnskóla
horgarinnar.
Þegar garðbúar koma heim aftur,
venjulega kl. rúmlega 4 síðdegis, er
ræstingu garðsins lokið. Það fyrsta,
sem menn hyggja þá að, er, hvort
komin séu bréf að heiman, en síðan