Samtíðin - 01.06.1956, Qupperneq 7

Samtíðin - 01.06.1956, Qupperneq 7
5. heíti 23. árg, Nr. 223 Júní 1956 TlMARIT TIL SKEMMTUNAR OG FRÓÐLEIKS SAMTIÐIN keniur út mánaðarlega nema í jan. og ágúst. Ritstjóri og útgefandi: Sigurð- ur Skúlason, Reykjavik, sími 2526, pósthólf 75. Árgjaldið, 45 kr. (erl. 55 kr.), greiðist fyrirfram. Áskriftir miðast við siðustu áramót. Áskriftargjöldum veitt móttaka í Bæk- ur og ritföng hf., Austurstræti 1. — Félagsprentsmiðjan hf. yyjaynúi \Jíý(undiion rœ&iima&ur : Áburðarverksmiðjan og landbúnaðurinu VIÐ HÖFUM beðið einn af mikilvirk- ur hi Iðnrekendum þjóðar vorrar, Magnús ræðlsir.ani'.s Víglundsson, sem jafnframt er stórbóndi á föðurleifð sinni, Höfða í Biskupstungum, er hann hefur ásamt systkinum sinum breytt í nýtízku höfuð- ból, að rita forustugrein þessa heftis. Hann kaus ræktunarmálin og fórust þann- ig orð: íslendingum hefir löngiim verið ljóst, að mikill og góður heyafli væri helzta undirstaðan undir velgengni islenzks land- búnaðar. Og þegar langir og harðir vetur urðu þess valdandi, að búfénaður gekk •lla undan vetri eða jafnvel féll af fóður- skorti, var afkomu bænda og raunar þjóð- arinnar allrar jafnliliða stefnt i fulla tví- sýnu. Vonin uni að geta fært út túnin, svo að stunda mætti heyskapinn að verulegu leyti á ræktuðu landi hafði löngum vakað * huga islenzkra bænda. Til þess að sú von Uiætti rætast var þó margra hluta vant, en þó fyrst og fremst bættra skilyrða til öflunar áburðar. Er aðrar þjóðir hófu fyrir nokkrum ára- tugum að framleiða tilbúinn áburð úr •oftinu við raforku frá fallvötnum, vakn- aði sú von í huga framsýnna manna, að á íslandi væru einnig möguleikar til að hag- nýta orku íslenzkra fossa og fallvatna til R’amleiðslu á tilbúnum áburði. Með þeim framkvæmdum skyldi íslenzkur Iandbún- aður leystur úr viðjum kyrrstöðu og úr- ræðaleysis, og var mönnum framtak og reynsla frænda okkar, Norðmanna, ofar- lega í huga til fyrirmyndar. Sá úr hópi fslendinga, er flesta mögu- leika eygði og mestan metnað hafði fyrir fslands hönd í þessum efnum, var þjóð- skáldið Einar Benediktsson. Hann var ekki í minnsta vafa um, að „frjómögn lofts má draga að blómi og björk, — já, búning hitans sníða úr jökulsklæðum“. — Og nú er spádómurinn, sem felst í þess- um ljóðlinum, orðinn að veruleika í lífi is- lenzku þjóðarinnar. Þúsandir heimila í sveit og við sjó njóta nú birtu og yls frá virkjaðri orku islenzkra fallvatna, en auk þess hefir raforkan verið íslenzkum iðn- aði Iyftistöng til margháttaðra framfara og aukinnar starfsemi. Og stærsta iðnfyrirtækið, sem rekið er með orku frá íslenzku raforkustöðvunuin, er einmitt Áburðarverksmiðjan, sem nú liefir verið rekin um nokkurt skeið. Hefir sú reynsla, sem þegar er fengin af starf- semi verksmiðjunnar, sannað, að Einar Benediktsson og aðrir góðir fslendingar, er í öndverðu börðust fyrir að stofna til áburðarframleiðslu hér, höfðu lög að mæla. ýlargir aðilar sameinuðu krafta sína til

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.