Samtíðin - 01.06.1956, Blaðsíða 10
SAMTÍÐIN
G
lega upp með fingurgómunum, en
ekki með oddlivassri þjöl. Haltu
nöglunum nokkrar mínútur niðri í
sápuvatni, lireinsaðu þær síðan með
mjúkum tréstöngli, sem baðmull er
vafið um. Ef þú ert óhrein kringum
neglurnar, er gott að væta stöngul-
inn i „brintoverilte“. Skolaðu hend-
urnar síðan og þurrkaðu þær vel og
vandlega. Að því húnu skaltu lakka
neglurnar.
Hár kringum munninn
IIALLA skrifar mér mjög vinsam-
legt bréf og biður mig að gefa sér
ráð til að losna við hár, sem vilji
vaxa kringum munninn á sér. Ég
hef beðið frú Ástu Jolmsen, forstöðu-
konu hinnar kunnu snyrtistofu „Jean
de Grasse“ í Pósthússtræti 13 að gefa
ráð í þessu efni. Frúin varð góðfús-
lega við þeim tilmælum, en taldi, að
ef Halla væri kornung, væri óþarfi
að gera nokkuð, því að ungum stúlk-
um yxu smámunir í þessum efnum
stundum óþarflega í augum. Væri
hins vegar um verulegan hárvöxt að
ræða, mætti eyða honum með svo-
nefndri vax-aðferð, sem góðar snyrti-
stofur létu í té. Við þá aðgerð missa
hárin vaxtarkraft sinn. „Jean de
Grasse“ snyrtistofan notar einnig
ljóslækningu við þessu, en ekki nema
um alvarlegan hárvöxt sé að ræða
(á rosknu fólki).
Kynlífsfræðsla
M|ÖÐIR skrifar: Kæri þáttur. Hve-
Vel klædd kona kaupir hattana hjá
HATTAVERZLUN ISAFOLDAR H.F.
Bára Sigurjónsdóttir,
Austurstræti 14. Sími 5222.
nær á ég að segja hörnum mínum
frá áslalífi manns og konu og öllu
því, sem þar kemur til greina? Sjálf
fékk ég á sínum tíma ekkert uin það
að vita. Fólk forðaðist að minnast á
þess háttar, eins og það væru ekki
einungis feimnismál, heldur einhver
óskapleg launungarmál, og þegar ég
giftist, var ég fyrir bragðið að heita
má algerlega ófróð í þeim efnum.
Til allrar hamingju eignaðist ég frá-
hæran mann, en ég á ekki víst, að
litlu dæturnar mínar verði jafn
heppnar i þeim efnum. Gefðu mér
nú ráð, Freyja mín.
SVAR: Eg held, að óliætt sé að
fullyrða, að öll skynsamleg kynlífs-
fræðsla sé börnum bæði nauðsynleg
og lioll og réttast sé að veita þeim
hana fyrr en siðar. Þú ættir sannar-
lega ekki að láta telpurnar þinar
ganga jafn fáfróðar um þessi efni í
hjónabandið og þú segist sjálf hafa
verið. — Freyja.
Borðaðirðu 6 kg af osti árið,
sem leið?
EIN af grannþjóðum okkar neytti
að meðaltali 6 kg af osti á mann sl.
ár, og var það heldur meira en árið
áður. Þetta þykir manneldisfræðing-
um þó ekki nægilegt, vegna þess hve
lioll fæða ostur sé. Hve mikið af osti
borðar þú árlega? Ostur er úrvals
fæða og íslenzkur matur í þokkabót.
Hollt er heima hvað.
SAMTÍÐIN er tímarit allra fslendinga.
Kraftur hins sunnlenzka gróðurs
býr í smjörinu og ostunum frá okkur.
Mjólkurbú Flóamanna.