Samtíðin - 01.06.1956, Blaðsíða 24
20
SAMfÍÐIN
Samtíöarhjónin
TVÖ ÁR voru liöin, síöan Svala
og Krummi gengu í heilagt lijóna-
band. Krummi vann hjá sama fyrir-
tœki og áður — en ég hef aldrei
minnzt á, livar eða að liverju hann
starfar. Aðalatriðið er, að Samtíðar-
hjónin okkar hyrja húskap sinn með
svo að segja tvær hendur tómar. Þau
þurfa að treysta á sjálf sig og skapa
sér þá aðstöðu í lifinu, sem þau
dreymir um. Umfram allt vilja þau
vera bjargálna og sjálfstæð, eignast
þak yfir höfuð sér og ef geta þeirra
leyfir sitt eigið farartæki, bifreið. En
gallinn er bara sá, að á oklcar timum
getur enginn veitt sér þennan „mun-
að“, ef ekki eru aðrar tekjur fyrir
hendi en vanaleg mánaðarlaun miðl-
ungsmanns. Þeir, sem eittlwað ætla
sér fram yfir fæði og klæði, verða
að gjöra svo vel að klóra í bakkann
upp á eigin spýtur. Krummi þekkti
bvggingameistara og fékk hjá hon-
um vinnu í tómstundum sínum. Fag-
maður var hann ekki á því sviði og
nefndist því handlangari.
Þegar hann kom heim að loknu
verki fvrsta kvöldið, var hann svo
lurkum laminn, að hann gat sig
Iivergi hreyft. Hann lagðist endilang-
ur á legubekk, en Svala settist í stól
með prjóna sína. Gaukur var fyrir
löngu steinsofnaður.
Komið ávallt fyrst til okkar,
e/ yður vantar vönduð úr og klukkur
eða smekklega skartgripi.
Sigmar Jónsson úrsm., Laugavegi 84.
Tjöld, margar stærðir, úr
mislitum dúk.
Tjaldsúlur
Tjaldbotnar
Sólskýli
Garðstólar
Svefnpokar
Bakpokar
Sportfatnaður alls konar
Vindsængur
Ferðaprímusar
Spritttöflur
Fyrirliggjandi
GEYSIR H.F.
Veiðarfæradeildin.
Vesturgötu 1.