Samtíðin - 01.06.1956, Page 17

Samtíðin - 01.06.1956, Page 17
SAMTÍÐIN 13 ar með baðmull, vættri í eter. Hún fann hvassa nálstunguna, og í sömu andránni var liann setztur andspænis henni. Það var nú fyrst sem hann starði í augu henni, og um leið varð hún gripin unaðslegri magnleysis- værð. Rödd lians var mjúk og lág. „Ég vil, að þér verðið máttlaus, sofnið og látið yður dreyma. Þér eig- ið að lýsa því, sem yður dreymir. Látið ekkert framhjá yður fara. Lýs- ið þér öllu. Þér eigið að verða mátt- laus, láta yður dreyma, vera máttlaus ... sofna ... dreyma.“ Hún var sofnuð, en augu hennar voru galopin. Þau störðu í augu lians. Eftir fáein andartök fór hún að tala. Hann hlustaði með athygli. „Ég stend fyrir utan garðshlið með rimlagrind. Bak við mig er mj ór veg- ur uppi í sveit og handan lians slcóg- ur ok akrar. Ég er að horfa á hús, sem stendur á lítilli hæð og er um- kringt illa hirtum garði. Það er ekk- ert að húsinu. Það er einmitt svona hús, sem mig hefur ávallt vanliagað Um. Við dyrnar standa rósatré, og það eru tveir kvistgluggar á húsinu. Veggirnir eru úr steini og eru sums staðar þaktir grænum skriðjurtum. Reykjarstrók leggur upp úr stromp- inum, sem er úr rauðum tígulsteini. „Ég opna hliðið og geng upp stíg- inn áleiðis til hússins. Ég er að velta þvi fy rir mér, hvort það muni vera til sölu, því ef svo væri, er ég alveg staðráðin í að kaupa það, hvað sem það kostar. Ég sé í anda, hve vistlegt <ig gæti gert það, ef ég ætti það. Nú stend ég við dyrnar, sem eru nieð fornlegum dyrahamri úr málmi. drep á dyr og doka við. Enginn svarar, svo ég ber aftur. Nú heyri ég fótatak. Dyrnar opnast liljóðlega, fyrir framan mig stendur gamall maður. Hann er lotinn í herðum, fölur og magur. Bersköllóttur er hann, og klunnaleg eyrun standa út úr höfð- inu. Hann glápir á mig stórum, ótta- slegnum augum. Máttlaus munnur- inn opnast, og þá tek ég eftir því, að liann titrar eins og lauf í vindi. Ég sé, að hann er náfölur. Það er eins og ég horfi framan í lík með upp- glennt augun. Stundarkorn steinþegj- um við bæði. Það fer kynlegur hrollur um mig alla, og ég er pínulítið smeyk við karlinn, en samt spyr ég liann, hvort ég megi líta á húsið. Hann anzar þvi engu, en hörfar aftur á bak og opn- ar hurðina betur. Ég tek þetta svo, að hann sé að bj óða mér inn og vind mér inn í húsið. Ég skunda framhjá öldungnum, sem stendur kyrr við opnar dyrnar og gerir sig ekki lík- legan til að veita mér eftirför. Ég geng inn i herbergin á fyrstu hæð og athuga þau hvert af öðru. Þau eru alveg eins og ég mundi helzt á kjósa. Svo fer ég upp á loft og lít á svefnherbergin. Ég kem að stórri stofu, þar sem ekkert er inni, vegg- irnir eru berir og ekkert teppi á gólf- inu. Gluggar eru þar á tveimur veggj- um, og mundi þetta vera prýðileg vinnustofa. Ég geng inn í stofuna, og þegar ég var koniin inn í hana miðja, missi ég hanzkann minn á gólfið. Það er brúnn skinnhanzki, og stafirnir mínir eru saumaðir innan í liann. Þótt undarlegt megi virðast, liirði ég ekki um að taka upp hanzkann, enda

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.