Samtíðin - 01.06.1956, Síða 32
28
SAMTÍÐIN
MAÐUR NOKKUR hrósaði dreng
fyrir frábæra greind í tilsvörum, en
bætti því við, að bráðþroska börn
yrðu oft treggáfuð, þegar liði á ævina.
,,Þá hlýtur þú að hafa verið bráð-
greint barn,“ sagði drengurinn.
ENGLENDINGUR og Skoti voru
að ræða um, í hvoru landinu væri
betri matur. Þá sagði Skotinn: ,,Hjá
okkur er lagt svo mikið upp úr góð-
um mat, að ég man eftir skírnar-
veizlu, þar sem tólf kokkar höfðu bú-
ið til matinn.“
„Ég skil,“ svaraði Englendingur-
inn. „Gestirnir hafa allir komið með
bitann með sér að heiman.“
SIGGA LITLA hafði ekki komið í
skólann dag einn í september.
Kennslukonan spurði um ástæðuna.
„Mamma var að sulta rifsber og
sendi mig út í kirkjugarð," sagði telp-
an.
„Til hvers?“
„Til að ná í sultuglös undan blóm-
um.“
MAÐUR NOKKUR kom dauð-
skelkaður til prestsins síns og kvaðst
hafa séð draug undir kirkjuveggnum
í tunglsljósinu síðastliðna nótt.
„Og hverju líktist hann?“ spurði
presturinn.
„Einna helzt asna,“ svaraði mað-
urinn.
„Þá hefur það bara verið skugginn
þinn,“ anzaði prestur.
VÖNDUÐ FATAEFNI
ávallt fyrirliggjandi, einnig kambgarn i
samkvœmisföt. Hagstœtt verð.
ÞORGILS ÞORGILSSON, KLÆÐSKERI
Lækjargötu 6A. — Sími 82276.
Vöruvöndun umfram allt.
MATBORG
IMiðursuðuvörur
Fiskur
Síld
Grænmeti
Framleitt undir opinberu eftirliti.
Það ORKAR ekki tvímælis, að
RAFORKA
á Vesturgötu 2 og Laugav. 63.
hefur beztu og fállegustu
Ljfttste ttnli in
Itúsáhöidin
Ileiinilisvélttmar
Við bjóðum ávallt bað bezta.
Látið okkur annast alla rafmagns-
vinnu fyrir yður.
Síminn er 80946.