Samtíðin - 01.07.1958, Qupperneq 7

Samtíðin - 01.07.1958, Qupperneq 7
6. hefti 25. árg, IMr. 244 Júií 1958 SAMTÍÐIN kemur út mánaðarlega nema í jan. og ágúst. Ritstjóri og útgefandi: Sigurð- ur Skúlason, Reykjavík, sími 12526, pósthólf 472. Afgreiðslusími 18985. Árgjaldið, 55 kr. (erl. 65 kr.), greiðist fyrirfram. Áskriftir miðast við síðustu áramót. Áskriftargjöld- um veitt móttaka í Bókaverzlun Isafoldar, Austurstræti 8. — Félagsprentsmiðjan hf. Wr. Schtveiízer varar við hgaraarhuspreasggani MANNVINURINN, ilr. Albert Schweitz- er, skoraði fyrir rúmu ári á stórveldin að stöðva kjarnorkusprengingar 5 tilrauna- skyni. Nú hefur þessi heimskunni friðar- sinni enn sent hervæðingarríkjunum ekki færri en þrjár orðsendingar undir sam- úeitinu: FRIÐUR EÐA KJARNORKU- STYRJÖUD. Hin fyrsta varar einkum við hættulegum geislaverkunum. Inntak hennar er m. a. á þessa ieið: í apríl sl. ár vakti ég ásamt fleirum Uiáls á því, hve mikil hætta stafaði af hjarnorku- og vetnissprengjutilraunimi, vegna þess hve andrúmsloftið og jörðin eitraðist af þeim. Við kröfðumst þess, að t>au ríki, sem ættu kjarnorkusprengjur, byndust samtökum imi að hætta þegar í stað öllum tilraunum með þær. Þá var enn von til, að svo yrði, en illu heilli liafa herveidaráðstefnur, sem siðan hafa fjall- að um þessi mál, farið út um þúfur. Schweitzer vísar eindregið á bug blekk- mgum um svonefndan hreinleik vetnis- sprengjanna, þ. e. að þær valdi ekki skað- legum geislaverkummi. Hann bendir á, að kveikja þeirra sé þó úr úran 235, er jafnaði Hiroshima við jörðu. Enn er ó- sannað mál, hve mikið geislavirkt magn •'iaðurinn þolir. Árið 1930 héldu menn, að hann þyldi 100 einingar á ári. Nú er sú tala komin niður í 5! Hættan stafar ekki einungis af geislum þeim, er falla á hör- Und mannsins, þvi að það verndar hann furðu vel gegn þeim. Miklu geigvænlegri er geislavirk fæða. Úr henni safnast eit- urefni í innyflin. Fyrir þeim er fólk varn- arlaust. Strontium 90 er hættulegasta geislavirka eitrið. Það safnast í beinvef- ina, sendir skaðvænleg áhrif frá mæn- unni og veldur banvænum blóðsjúkdóm- um. Verst leikur það frumur kynfær- anna. Áhrif þess munu koma í ljós, eftir 'að 2—3 næstu kynslóðir eru látnar. Mun þá fjöldi vanskapaðra barna fæðast. Schweitzer bendir á, að áróðurinn fyrir kjarnorkusprengjunum liafi vérið brotinn á bak aftur með yfirlýsinu dr. U. Paulings til Sameinuðu þjóðanna 13. jan. sl., und- irritaðri af 9235 vísindamönnum frá fjöl- mörgum löndimi. Þar var varað við fæð- ingum vanskapaðra barna í framtíðinni vegna erfðasjúkdóma af völdum geisla- verl^ana. Sclwveitzer segir: Við getum ekki liaft á samvizkunni, að börn, haldin alvarlegustu andlegum og likamlegum sjúkdómxun, fæðist, svo að þúsundum skiptir í þennan heim, einungis vegna þess að við höfum ekki verið á verði gegn liættunni. Þeir einir, sem ekki hafa verið sjónarvottar að fæðingu vanskapaðs barns, ekki hafa heyrt harmakvein móð- ur þess né séð skelfingu liennar, geta vog- að sér að mæla með þeirri áhættu, sem frekari kjarnorkusprengingar hljóta að hafa í för með sér. Hættan af þei.m niun aukast sjálfkrafa, því að allt að 15 ár líða,

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.