Samtíðin - 01.07.1958, Blaðsíða 35
SAMTÍÐIN
31
ÞEIR VITRL IMVJAR BÆKUR
m::;::::::::::::::; sögðij:
GUNNAR GUNNARSSON: „Það er
hlutverk mannsins, ef til vill hið eina,
að finna ráð. Að gefast ekki upp. Að
spyrna á móti broddunum, hversu
hvassir sem þeir eru. Spyrna á móti
broddi sjálfs dauðans, þangað til
hann gangur í gegn og hæfir hjarta-
stað. Þetta er hlutverk mannsins.“
B. McKENNA: „Gefðu svíni þínu
og syni þínum allt, sem þau girnast,
°g þú færð gott svín og slæman son.“
P. J. BAILEY: „Hið aumasta, sem
hugsazt getur, er að svíkja sjálfan
sig.“
J. Q. ADAMS: „Sérhver maður ætti
að hafa í huga sér allstóran kirkju-
Sarð til að grafa í yfirsjónir granna
sinna.“
FULTON SHEEN: „Ein mesta vit-
teysa, sem hugsazt getur, er að hugsa
*nest um skemmtanir. Skemmtun er
fullkomið aukaatriði, en skyldurækni
við störf sín algert aðalatriðil Það
kemur ekki til mála að hugsa til að
skemmta sér, fyrr en menn hafa lok-
ið miklu og góðu starfi, helzt náð
heilum áfanga.“
KINVERSK SPEKI: „Ef þú vilt
verða hamingjusamur í þrjá klukku-
tíma, þá skaltu fá þér neðan í því.
Viljirðu vera hamingjusamur í þrjá
daga, þá slátraðu svíni og éttu það.
Viljirðu vera hamingjsamur í þrjá
mánuði, þá rjúktu til og giftu þig.
En viljirðu verða hamingjusamur
aila ævi, skaltu aldrei látast vera
yngri en þú ert í raun og veru.“
Ágúst Sigurðsson: Islenzk-dönsk orðabók.
Með málfræðiskýringum. 440 bls., íb.
kr. 95.00.
Anna Bjarnadóttir: Ensk lestrarbók, 2. út-
gáfa. 346 bls., ib. kr. 75.00.
Örn Klói: Jói og sjóræningjastrákarnir.
Saga af íslenzkum útlaga- og ævintýra-
dreng. 112 bls., íb. kr. 35.00.
Böðvar frá Hnifsdal: Strákarnir, sem
struku. Drengjasaga. 119 bls., íb. kr.
58.00.
Árni Óla: Lítill smali og hundurinn hans.
Drengjabók. 115 bls., íb. kr. 58.00.
Guðmundur Frímann: Söngvar frá sum-
arengjum. Ljóð. 110 bls., ób. kr. 60.00,
íb. 80.00, 90,00.
Einar Kristjánsson Freyr: Undan
straumnum. Leikrit i 4 þáttum. 157 bls.,
ób. kr. 90.00.
Kristján Albertsson: Hönd dauðans. Leik-
rit í fimm þáttum. 157 bls., ób. kr. 98.00.
Jakob Jóh. Smári: Við djúpar lindir.
Kvæði. 163 bls., ób. kr. 70.00, íb. 105.00.
Einar Benediktsson: Sýnisbók. Úrval úr
ljóðum og lausu máli. Teikningar eftir
Jóhannes Sveinsson Kjarval. 270 bls.,
ib. kr. 130.00.
Skagfirzk ljóð eftir sextíu og átta höf-
unda. 264 bls., ób. kr. 130.00, íb. 150.00.
William Shakespeare: Leikrit II. bindi.
Július Cæsar, Ofviðrið og Hinrik 4.
Helgi Hálfdánarson þýddi. 295 bls., ób.
kr. 125.00, íb. 160.00.
Jónas Árnason: Veturnótta kyrrur. Frá-
sagnir, svipmyndir og sögur úr lífi sjó-
manna. 280 bls., ób. kr. 110.00, ib. 140.00.
Pétur Jakobsson: Flugeldar I. Nokkrar
ritgerðir. 160 bls., ób. kr. 60.00.
Eirikur V. Albertsson: 1 hendi Guðs. Pré-
dikanir. 173 bls., ib. kr. 85.00.
Útvegum allar fáanlegar bækur. Kaupið
bækurnar og ritföngin þar, sem úrvalið
er mcst. — Sendum gegn póstkröfu um
land allt.
BÓKAVERZLUN
1SAF0LDARPRENTSMIÐJU H.F.
Austurstræti 8, Reykjavík. Sími 1-45-27.