Samtíðin - 01.09.1960, Side 7

Samtíðin - 01.09.1960, Side 7
7. blað 27. árg. IMr. 265 September 1960 SAMTIÐIIM HEIIUILISBLAÐ TIL SKEIUIVITLIVIAR OG FRÓÐLEIKS SAMTIÐIN kemur út mánaSarlega nema í jan. og ágúst. Ritstjóri og útgefandi: Sigurður Skúla- son, Reykjavik, sími 12526, pósthólf 472. Afgreiðslusími 18985. Árgjaldið, 65 kr. (erl. 75 kr.), Sreiðist fyrirfram. Áskriftir miðast við áramót. Áskriftargjöldum veitt móttaka í Bókaverzlun ísafoldar, Austurstræti 8. — Félagsprentsmiðjan hf. Merhið stcndur9 pátt ntnðurinn fulli JAFN FÁMENNRI þjóð og íslendingum er það nauðsyn að þekkja sinn vitjunarííma, þá sjaldan hún eignast brautryðjendur á heimsmælikvarða. Einn þeirra er nú nýlátinn, Jónas Kristjánsson lieknir. Við fráfall hans er margs góðs að minn- ast. Jónas óx upp við kröpp kjör á tímabili, er nám- fús íslenzk æska átti ekki margra kosta völ. í æsku hans geisaði harðæri rnikið hér á landi, og hurfu þá margir af landi brott til Vesturheims. Jónas lauk embættisprófi í læknisfræði 10 árum aður en hér var stofnaður háskóli. Síðar gerðist hann héraðslæknir, fyrst á Fljótsdalshéraði og hví næst á Sauðárkróki. Margir stéttarbræður hans létu sér að sjálfsögðu nægja að vinna hljóð- lát afrek í stárfi sínu og lýjast, þar til þeir sögðu af sér embætti eða féllu í valinn fyrir aldur fram eftir ótrúlega örðuga baráttu við frumstæðustu starfsskilyrði. En Jónas Kristjánsson átti sér hugsjón, sem hann vildi helga alla krafta sína. Hann gerðist a fjórða tug aldarinnar frumkviiðull náttúru- laekningastefnunnar hér á landi og lét sig ekki niuna um að takast á hendur fjórar kostnaðar- samar utanfarir til þess að kynna sér rækilega hvað eina, er orðið gæti henni til framdráttar. J il dæmis um stórhug hans og dugnað má nefna, að hann fór þrjár námsfarir alla leið til Ameríku. Jónas læknir sótti um lausn frá embætti 1938 E1 þess að geta sinnt náttúrulækningum einvörð- Ungu. Honum blöskraði öll sú vanheilsa, er hann laldi, að lélegt mataræði og óhollir lifnaðarhætt- lr leiddu yfir fólk. Kjarninn í kenningu hans 'ar, að uppræta bæri orsakir hvers konar hrörn- unarsjúkdóma í stað þess að glíma stöðugt við afleiðingar þeirra. Og til Jónasar streymdi fjöldi fólks, er ekki taldi sig hafa hlotið bót meina sinna annars staðar. En öllum, sem til læknisins komu, miðlaði hann hollráðum af gnótt þekkingar, reynslu og mannkærleika. Ég hygg, að fáir hafi farið með öllu ósnortnir af fundi hans-. Og þar, sem hann lagði hönd að verki, urðu gifturíkar afleiðingar. Náttúrulækn- ingafélög risu upp víða um landið innan vé- banda Náttúrulækningafélags Islands. Tímaritið „Heilsuvernd“ l'ærði þúsundum lesenda hug- vekjur um nierkar nýjungar og mörg hollráð. Efni ritsins var alltaf jafn ferskt, enda þótt kjarni boðskapar þess væri síendurtekinn. Auk þess gaf Náttúrulækningafélgið út nokkrar nyt- samar bækur. En athafnir urðu á fleiri sviðum og náðu til fólks utan vébanda félagsins. í Reykjavík var stofnuð NLF-búðin á Týsgötu 8, þar sem allir geta keypt hvers konar hollar matvörur, og NLF-brauðgerðin í Tjarnargötu 10, er hefur á boðstólum brauð og kökur úr nýmöluðu heil- hveiti. En bæði þessi fyrirtæki starfa samkvæmt hugsjón Jónasar læknis um aukna hollustu í mataræði. En austur í Hveragerði var Grettistaki lyft með byggingu hins vinsæla heilsuhælis, er lengi hafði verið hugsjón Jónasar Kristjánssonar. Þar auðnaðist honum að rækja köllun sína seinustu æviárin allt fram til hinztu stundar, er hann lézt sl. vor, kominn fast að níræðu. Slíkra afbragðsmanna er gott að minnast. Þeirri baráttu í þágu heilbrigðs lífs, sem Jónas læknir hóf hér á landi, má ekki linna, þótt hans sjálfs njóti nú ekki lengur við.

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.