Samtíðin - 01.09.1960, Qupperneq 20

Samtíðin - 01.09.1960, Qupperneq 20
lt> SAMTÍÐIN vopnaflutningi Araba í NorSur-Palestínu. Draumur Wingates um yfirstjórn sam- einaðs Gyðingahers rættist aldrei, en þarna norður frá kom hann með fádæma dugnaði upp herdeild brezkra fótgöngu- liðsmanna og ólöglegra Haganeh-her- manna, og varð hún seinna kjarninn í lær Gyðinga. Wingate varð frægur fyrir stóran sól- hjálm, sem hann var alllaf með (eins og Montgomery af húfu sinni). Lifnaðar- hættir hans urðu nú í meira lagi ein- strengingslegir. Hann fór aldrei í bað, en burstaði hörund sitt í þess stað með hörð- um bursta. Hann nærðist ekki á öðru en vínberjum, sat nakinn á rúmstokknum, er liann hélt herráðsfundi, og gekk með vekjaraklukku á úlnliðnum, sem hringdi, ef hann talaði of lengi. Einu sinni æll- aði hann að vinna Arabaþorp með því að blása í lúðra, að dæmi Gídeons, er múrar Jeríkóborgar hrundu fyrir lúður- hljómi hans. En áformið strandaði á þvi, að Wingate fékk ekki léð hin heilögu hafurshorn úr guðshúsum Gyðinganna. í hvert sinn, sem móti blés, samdi Win- gate löng kæruskjöl lil yfirboðara sinna allt upp til Bretakonungs. Áróður bans fyrir Zíonismanum var stundum svo skefjalaus, að jafnvel Gyðingum ofbauð. Ást hans á Landinu helga var svo lieit, að lionum fannst hann vera orðinn út- lagi á borð við Makarios erkibiskup, er brezki landstjórinn bannaði honum að koma þangað, þegar heimsstyrjöldin brauzt út. + Tvenns konar sjálfsmorð NÆST FER Wingate til Englands, er látinn æfa þar skæruliðssveitir gegn hugsanlgri innrás Þjóðverja í landið, en er síðan sendur lil Eþíópíu. I Súdan safn- ar hann að sér eþíópskum flóttamönnum og dreifum brezks herliðs, myndar úr þessu fólki skemmdarverkasveit og gerir ítölum síðan allt til meins, en ryður árás- arher Cunninghams hershöfðingja með því braut inn í Eþíópíu. Wingate majór gengur að þessu verki með eldlegum trúarbita og lítur á starf silt sem frelsun Eþíópíumanna undan kúgunaroki ílala. Takist sú frelsun, eru horfur á, að seinna verði unnt að frelsa Gyðinga. Hann lofar Haile Selassie keis- ara fullkomnum sigri, fyrst er þeir hitt- ast, en með því skilyrði, að keisarinn treysti honum skilyrðislaust, þar til mark- inu sé náð. Wingate missir 15000 úlfalda, en hon- um tekst að brjótast langt inn í landið og leika ofljoðslega á ítali, meðan liðssveit- ir Cunninghams hershöfðingja eru að frelsa mikinn hluta landsins. Þegar Wingate keniur til Kairó, að ])essu frelsisstríði loknu, býst hann við, að sér verði fagnað með mikilli viðhöfn sem sigurvegara. En lierforingjaráð Breta hefur í allt öðru að snúast á hinni miklu hættutíð 1941. Örmagna af mýraköldu og þunglyndi, sem aldrei skildi við hann, gerir hann tilraun lil sjálfsmorðs með því að opna sér liálsæð. En rétt áður lief- ur hann í raun réttri framið annað sjálfs- morð með því að senda Churchill skýrslu, þar sem komizt var svo að orði: „Cunn- ingham hershöfðingi og menn bans baga sér eins og bernaðarlegir apakettir.“ + Ferðin gegnum frumskóginn IIANN KEMST til lieilsu heima í Lond- on og sannfærir herstjórnina um, að nú sé liann orðinn alheill á sál og líkama. Við yfirheyrslu segir hann, að öll mikil- menni bafi bafl tilhneigingu til að stytta sér aldur og nefnir sem dæmi Friðrik mikla, Clive af Indlandi (sem reyndi það þrisvar) og Napóleon mikla. Með áhyrgð

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.