Samtíðin - 01.11.1962, Blaðsíða 20
16
SAMTÍÐIN
Kunnið þið
að ala upp börn?
EF ÞIÐ viljið fá úr þvi skorið, hvort
þið kunnið að ala upp börn, ættuð þið að
ganga undir þetta próf. Svarið spurn-
ingunum, áður en þið kynnið ykkur
einkunnakerfið aftan við prófið.
1. Ef drengurinn ykkar hefur tekið
peninga frá leikbróður sínum, munduð
þið þá: a) refsa honum undir eins og
láta svo allt vera gleymt? b) láta hann
vera í ónáð tímakorn? c) fá hann til að
endurgreiða peningana og láta hann síð-
an fá störf, til þess að hann geti unnið
sér inn svipaða fjárhæð?
2. Álítið þið, að skapferli (karakter)
barns sé: a) meðfætt? b) myndað af um-
hverfi og aðstæðum?
3. Hvenær álítið þið, að óhætt sé að
skilja harn ykkar eftir lijá öðrum, með-
an þið farið í frí: a) þegar eftir fæðingu
þess? h) frá því það er á öðru ári? c)
frá því það er á fimmta ári? d) frá því
það er á sjöunda ári?
4. Teljið þið, að misgömul börn i sömu
fjölskyldu eigi að fara: a) jafnsnemma
að hátta á kvöldin? h) missnemma eftir
aldri? c) með tilliti til þess, hve vel þau
hafa hagað sér um daginn?
5. Ilvað gerið þið, ef þriggja ára barn
verður hamslaust af reiði: a) flengið
það? h) látið það, ef unnt er, dúsa ein-
samalt í herbergi? c) revnið að fá það
til að hugsa um eitthvað annað? d)
skiptið ykkur ekkert af því?
6. Álítið ])ið, að það eigi að refsa
barni: a) til þess að öruggt sé, að það
geri sig ekki sekt um sömu yfirsjón á
nýjan leik? h) til þess að það komist í
skilning um, að það hafi gert rangt?
7. Hvað adlið þið að gera við eldra
barn, ef þið eignizt annað: a) vera eins
við það og áður? b) auðsýna því sér-
staka ástúð? c) reyna að vekja áhuga
þess fyrir yngra barninu?
8. Hvað teljið þið mikilsverðast fyrir
ung börn: a) reglulegar máltíðir og
reglulegan svefntíma? b) ástúðlegt heim-
ilislíf? c) að sama fólk annist þau að
staðaldri?
9. Fær barn ykkar vasapeninga lijá
ykkur: a) þegar það biður um þá? b)
með reglulegu millibili? c) þegar það
hefur sérstaklega til þeirra unnið?
10. Munduð þið, ef barn ykkar hegð-
aði sér ósjálfrátt illa á veitingastað: a)
ávíta það, af því að það hefur gert vkk-
ur smán? h) láta sem ekkert væri? c)
álasa sjálfum ykkur fyrst og fremst fyrir
að hafa tekið harnið með ykkur?
11. Álítið þið, að sálræn vandamál
barna stafi oft af: a) slæmum félags-
skap? b) öryggisleysi? c) óheppilegum
uppreisnarhug?
12. Teljið þið líklegt, að alltaf sé for-
svaranlegt að láta ungan dreng einan
um að taka ákvörðun um framtíðarstarf
sitt: a) já? h) nei?
13. Hvert er viðhorf ykkar til gaura-
gangsins í æskunni, sem er á 2. tug æv-
innar nú á dögum, t. d. rokk-æðisins: a)
látið þið það afskiptalaust? h) reynið þið
að draga úr því lijá hörnum ykkar? c)
— eða eggið þið þau til að ærslast?
14. Hve lengi á ungur piltur eða ung
stúlka að ykkar dómi að vera heima í
föðurgarði: a) til 18 ára aldurs? b) þar
til þau giftast? c) þar til þau fá fast
starf? d) óháð öllum ákvæðum?
15. Álitið þið, að foreldrar eigi yfirleitt
örðugra en hörn þeirra: a) já? h) nei?
16. Finnst ykkur, að ykkur liafi liðið
illa í æsku: a) já? b) nei?
17. Hvaða eiginleiki foreldra er mikil-
vægastur: a) hæfileikinn að kunna að
hafa heimilið í lagi? b) réttlæti við að