Samtíðin - 01.11.1962, Blaðsíða 33
SAMTÍÐIN
29
MAXIMILIAN SCHELL
Sumir telja hann bezta kvik-
■nyndaleikara ársins
ÞAÐ ER vandasamt að leika unga,
þýzka lögfræðinginn í kvikmyndinni
»Dómurinn í Nurnberg“. Hann er látinn
verja dómarana fjóra, sem ákærandinn
Richard Widmark -— krefst, að hinn
virðulegi réttur dæmi fyrir stríðsglæpi
frá Hitlers-tímabilinu og fyrir að liafa
misboðið frelsi einstaklingsins.
Maximilian Schell er fæddur í Vínar-
borg 8. des. 1930. Móðir hans var leik-
kona, fædd og uppalin þar í borg, en
faðir hans svissneskur leikritahöfund-
Ur.
Frá því að Max var barn, hugsaði hann
ekki um annað meira en að verða leik-
ai'i, þegar hann stálpaðist. Foreldrar
lians reyndu að fá hann ofan af þessari
i'áðleysu, en öll börn þeirra, tvær stúlk-
ur og tveir drengir, voru lialdin sömu
leikástríðunni, heilluð af lífsstarfi móð-
ur sinnar.
Árið 193S varð Schell-fjölskyldan að
flýja Austurríki, því að faðir Maximili-
ans var á svörtum lista lijá þýzku naz-
istunum. Max lauk síðar skólanámi og
lögboðinni herskyldu, en hóf að þvi
loknu leiklistarnám. Hann hefur leikið
1 austurrískum, svissneskum, frönskum
°g þýzkum leikhúsum.
Fyrsta kvikmyndin, sem liann lék i,
hét „Rörn, móðir og hershöfðinginn“.
Þegar þetta er ritað, hefur hann leikið í
samtals átta evrópskum kvikmyndum
°g einni amerískri: „Ungu ljónúnum“,
þar sem mótleikarar hans voru m. a.
þeir Marlon Brando, Montgomery Clift
°g Dean Martin.
Max hefur oft leikið í amerísku sjón-
varpi, og er veigamesta afrelc hans þar
hlutverk Hamlets, þriggja stunda leikur.
En hann hefur einnig getið sér gott orð
sem leikritahöfundur, því að leikrit
lians: „Það syrtir að í horginni“ varð
geysivinsælt á sviði í Berlin.
Max á sér mörg áhugamál. Hann er
mikill íþróttamaður og hefur mjög gam-
an af að leika tennis, fara á skíði, skylm-
ast og synda. Auk þess er hann góður
skákmaður og mikill unnandi sígildrar
tónlistar.
Hann er þróttmikill listamaður, glæsi-
legur álitum og gæddur miklum per-
sónutöfrum. Ungar stúlkur sjá ekki sól-
ina fvrir honum.